FÖSTUDAGUR 6.Febrúar 2009
Friday February 6th
20.00 @ Salurinn, Kópavogi
FÖSTUDAGUR 6.Febrúar 2009
Friday February 6th
20.00 @ Salurinn, Kópavogi
OPNUNARTÓNLEIKAR:
ÍSLENSK RAFTÓNLIST
Fram koma
Helgi Hrafn Jónsson, básúna / trombone
Katie Elizabeth Buckley, harpa
Frank Aarnink, slagverk / percussion
Úlfar Ingi Haraldsson, elektróník
EFNISSKRÁ / PROGRAM:
Haraldur V. Sveinbjörnsson: Ariel II - Frumflutningur
Hilmar Þórðarson: Helgileikur - Sononymus II f. básúnu og tölvu - Frumfl.
Ríkharður H. Friðriksson: Postcards from North & South
Ríkharður H. Friðriksson: Kristalhringir
Guðmundur Óli Sigurgeirsson: Unglingarnir í dómkirkjunni
Úlfar Ingi Haraldsson: Shadows & Silouettes f. hörpu, slagverk og elektróník
Um flytjendur / About the performers:
Katie Elizabeth Buckley - Harpa
Hóf nám í hörpuleik 8 ára gömul í Bandaríkjunum og lauk gráðunum Bachelor of Music,
Performer´s Certificate og Master of Music frá Eastman School of Music í Rochester, New York. Katie hefur komið víða fram sem einleikari með ýmsum hljómsveitum, þ.á.m. The Eastman Chamber Orchestra og Rochester Philharmonic Orchestra. Árið 2004 tók Katie við stöðu hörpuleikara við Brevard Music Festival í Brevard, North Carolina og var meðlimur í The World Philharmonic Orchestra í Paris 2006. Frá árinu 2005 hefur Katie verið aðalhörpuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Helgi Hrafn Jónsson - Básúna
Helgi Hrafn er fæddur í Reykjavík árið 1979. Hann hóf ungur að leika á básúnu og útskrifaðist af einleikaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík vorið 1999. Eftir það hélt Helgi Hrafn til Austurríkis og útskrifaðist sumarið 2004 frá Universität für Musik und Darstellende Kunst, Graz, með meistaragráðu.
Helgi Hrafn hefur verið áberandi í Austurrísku tónlistarlífi og hélt m.a. nýverið tónleika í eigin nafni í hinu virta Konzerthaus í Vínarborg. Hljómsveit hans Beefólk hefur ferðast vítt og breitt um Evrópu og Asíu og ma. verið tilnefnd til Þýsku hljómplötuverðlaunanna. Helgi Hrafn hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Röddum Evrópu, á ferð þeirra til Menningarborga Evrópu árið 2000. Helgi Hrafn hefur margsinnis leikið með Sigur Rós, bæði í upptökuveri og á sviði á tónleikaferðum þeirra um heiminn. Nýverið kom út hjá Playground Music Scandinavia, önnur sólóplata hans og hefur hún hlotið lofsamlega dóma og viðtökur.
Frank Aarnink - Slagverk
Frank stundaði nám í Hilversum og Amsterdam. Hann hefur spilað með flestum af þekktustu sinfóníuhljómsveitum og blásarasveitum Hollands og tekið þátt í mörgum óperu - og söngleikjauppfærslum þar í landi.Frá árinu 2001 verið Frank verið fastráðinn sem slagverks - og pákuleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands.Eftir að Frank fluttist til Íslands,hefur hann tekið virkan þátt í tónlistarlífi Íslendinga. Hann hefur meðal annars starfað sem slagverksleikari við Íslensku óperuna,slagverkshópinn Bendu,Kammersveit Reykjavíkur, Caput, Aton, Hljómeyki og Lúðrasveit Reykjavikur.Íslenzk tónskáld hafa samið sérstaklega tónverk fyrir hann,þar á meðal eru tónskáldin Daníel Bjarnason og Anna Þorvaldsdóttir.Frank er slagverkskennari í Tónlistaskóla FÍH.Einnig kennir hann slagverk við Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar.
Um verkin / About the pieces:
ARIEL II
Sumarið 2008 var ég þess heiðurs aðnjótandi að vera valinn staðartónskáld (composer in residence) við Gotland International Centre for Composers á eyjunni Gotlandi við austurströnd Svíþjóðar. Ég vann ARIEL II í hljóðveri þeirra, Studio Alpha, en það er byggt á eldra verki - ARIEL I - sem flutt var á Myrkum Músikdögum 2006. Líkt og í fyrra verkinu vinn ég með valin hvísluð orð úr söngvum Aríels úr Ofviðri Shakespeares, en að þessu sinni er djúpri merkingu kastað fyrir róða og þess í stað kafað dýpra inn í hljóðsamsetningu orðanna sjálfra. Útkoman er ja....rytmísk!
Nokkrum ber að þakka: Ég vil þakka Ramon Anthin fyrir liðlegheitin og leiðsögumennskuna, Jesper Elén fyrir tæknilega aðstoð og tónskáldunum Emilio Mendoza og Evis Sammoutis fyrir að halda mér félagsskap inn á milli tónsmíðaferilsins. - HVS
Helgileikur er saminn á þessu ári fyrir Helga Hrafn Jónsson básúnuleikara og tölvuna mína. Aðdragandinn að verkinu er sá að upphaflega lagði ég fram annað verk sem, Helgi var svo vinsamlegur að benda mér á að væri frekar fyrir trompet en básúnu. Ég reyndi að sannfæra hann en komst fljótlega að því að slíkt væri ógerningur. Helga leist því mun betur á hlutverk tölvunnar og því varð úr að við bárum saman bækur okkar og unnum upp nýtt verk, byggt á sömu hugmyndafræði og hið fyrra. Varð úr að ég mótaði 12 tón/hljóð myndir sem Helgi fær til að vinna úr. Honum er frjálst í hvaða röð hann spilar þessar myndir og einnig er honum gefið nokkurt frjálsræði með túlkun þeirra, þó mismikið fjrálsræði. Tölvan “hlustar” á básúnuhljóðin og bregst við þeim á mismunandi hátt, sumt fyrirfram mótað annað ekki. Helgi hlustar á viðbrögð tölvunar og bregst við þeim á sinn hátt. Þannig myndast leikur milli tölvunar og básúnunar sem heldur áfram að mótast í flutningnum þar til búið er að vefja saman allar 12 tón- og hljóðmyndirnar.
Þetta verk er tíunda verkið í röð verka fyrir sóló hljóðfæri og tölvu sem bera samheitið Sononymus. -HÞ
Shadows & Silhouettes
Verkið var samið fyrir Katie Buckley (harpa) og Frank Aarnink (slagverk). Titillinn merkir Skuggar og Skuggamyndir og segja má að efnið og þær hugmyndir sem hér er unnið með séu á margvíslegan hátt skuggar og skuggamyndir af hverri annarri. Það mætti segja að hver hugmynd eigi sér skuggamynd á öðrum stað í verkinu og þegar öllu er á botninn hvolft þá er sumpart óljóst hver sé upprunalega hugmyndin og því ekki um einhverskonar framsetningu og úrvinnslu að ræða. Ef til vill má hér sjá samsvörun við hugarstarfið, sérstaklega í skapandi ferli með allri sinni díalektík, þar sem hugmyndir virðast stundum skuggamyndir af einhverju öðru og þá hugsanlega einhverju öðru sem fer handan við manns eigin vitund. -ÚIH
Unglingarnir í dómkirkjunni er unnið úr mjög frumstæðri upptöku af söng hóps danskra unglinga í dómkirkjunni í Skálholti, haustið 2003. Undir lok verksins má heyra söng unglinganna sé grannt hlustað, en þau sungu danska sálminn I østet stiger solen op. Þegar kafað var í upptökuna kom í ljós að í hljóðheimi Skálholtskirkju var að finna einstaka hlýju og ró, sem blandaðist söng unglinganna á mjög sérstæðan hátt, auk þess sem gallar í upptökunni gáfu býsna skemmtilega “effekta”. Undir öllu þessu sónar eins konar bourdon bassi, framkallaður með sýndarhljóðfæri, má túlka sem undirliggjandi meðvitund lifandi manns í hinni himnesku ró.
Postcards from North and South (2008) er framlag mitt til samvinnuverkefnis tónskálda frá Norðurlöndunum og Suður-Ameríku. Allir lögðu hljóð frá sínu landi í púkkið og síðan voru gerð stutt verk þar sem menn notuðu annars vegar sín eigin hljóð og hins vegar hljóð frá hinum heimshlutanum. Ég tók þann pól í hæðina að tefla hljóðunum saman sem andstæðum án þess að reyna að tengja þau sérstaklega. Þannig nota ég einvörðungu náttúruhljóð frá Íslandi; vatnsnið frá Öskjusvæðinu, fótatak í fjörugrjóti frá Dritvík, kríur frá Vatnsnesi og fleira. Þessu tefli ég á móti ýmsum manngerðum hljóðum frá Suður-Ameríku, jú, og páfagaukum frá Urugvæ sem reyna af veikum mætti að tengja heimana tvo saman.
Verkið var upphaflega unnið í stereo en þetta er frumflutningur á víðóma útgáfu. -RHF
“Postcards from North and South” is a mixture of sounds that don’t really mix. We have sounds of nature from Iceland, in the form of birds, water and footsteps, and we have “non-natural”, but human voices from South America. These opposites attract, but don’t really communicate. They co-exist in a sonic space where they dance around each other, sometimes fighting for attentiton and sometimes complimenting each other. In the end, they have at least had a conversation, hopefully leading to future mutual understanding. Where does that leave us? Who knows? Together? Apart? In-between? Elsewhere?
The work was originally produced in stereo, but this is the premiere of a surround version.
Kristalhringir (2008) er "endurblöndun" á tveimur kammerverkum eftir Pál Pampichler Pálsson sem varð áttræður um það leyti. Það eru verkin Kristallar frá 1970 og sönglagið Hinghenda frá 1990, flutt af Signýju Sæmundsdóttur. Hljóðin komu öll upphaflega úr upptökum af verkunum. Síðan kom eitthvað fyrir þau...
Upphaflega útgáfan var pöntun frá Ríkisútvarpinu í tilefni áttræðisafmælis Páls. Verkið var upphaflega unnið í stereo en þetta er frumflutningur á víðóma útgáfu.-RHF
Crystal Rings (2008) is a "remix" of two chamber works by Icelandic / Austrian composer Páll Pampichler Pálsson (b. 1928). Every sound originally belonged to a recording of one of these pieces. Then things happened to them...
The original verson was a commission from Icelandic State Radio, celebrating Pálsson's 80th anniverary. The work was originally produced in stereo, but this is the premiere of a surround version.
Um tónskáldin / About the composers:
Haraldur V. Sveinbjörnsson lærði tónsmíðar hjá Hilmari Þórðarsyni við Tónlistarskólann í Reykjavík 1997 - 2001, og hjá Luca Franscesconi og Kent Olofsson í Svíþjóð árin 2002 - 2004. Hann útskrifaðist með M.Mus-gráðu í tónsmíðum frá Háskólanum í Lundi árið 2004. Hann hlaut verðlaun fyrir hljómsveitarverk sitt “Sjö byltur svefnleysingjans” í Helsingborg 2004 og var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2005 fyrir sama verk. Auk þess hefur hann hlotið athygli fyrir útsetningar sínar, t.d. á verki Pink Floyd, The Wall, í flutningi Dúndurfrétta og Sinfóníuhljómsveitar Íslands sumarið 2007, og á tónlist Bítlanna á tónleikum í Háskólabíói 2006 og 2008.
Meðfram tónsmíðum og útsetningum hefur Haraldur tekið þátt í norrænu tónlistarsamstarfi og komið að framkvæmd Myrkra Músikdaga frá 2007 og Norrænna Tónlistardaga á Íslandi 2006.
Haraldur V. Sveinbjörnsson studied composition with Hilmar Þórðarson at the Reykjavik Music College 1997-2001, and with Luca Francesconi and Kent Olofsson in Sweden 2002-2004. He graduated with M.Mus degree from the University of Lund in 2004. He won the Helsingborg’s “Composer of Tomorrow” awards 2004 for his orchestra piece “Seven Songs of the Insomniac” which was also nominated as the best contemporary piece on the Icelandic Music Awards 2005. He has also a noted arranger and performer, equally in the temporary scene as well as in rock music, in which his roots lie.
Over the past years Haraldur has been active in Nordic music collaborations and has been the executive producer of festivals such as Nordic Music Days and Dark Music Days.
Hilmar Þórðarson er fæddur á Akureyri árið 1960. Hann nam trompetleik við Tónlistarskóla Kópavogs og Tónlistarskólann í Reykjavík. Síðar lagði Hilmar stund á tónfræði og tónsmíðar við sömu skóla og útskrifaðist frá tónfræðabraut T.R. árið 1985. Þá lá leiðin til Bandaríkjanna þar sem Hilmar nam tónsmíðar við California Institute of the Arts (Cal Arts) og Yale School of Music. Að námi loknu var Hilmar gestur við tónver háskólanna í Stanford og Berkeley í Kaliforníu þar sem hann tileinkaði sér m.a. aðferðir við gagnvirkan tónlistarflutning. Eftir heimkomu árið 1995, hefur Hilmar auk tónsmíða tekið virkan þátt í uppbyggingu náms í tölvutónlist m.a. með því að vera í forsvari fyrir stofnun Tónvers Tónlistarskóla Kópavogs og Nýmiðlasviðs tónlistardeildar Listaháskóla Íslands. Mörg verka Hilmars hafa verið gefin út á geisladiskum og má nálgast þau í gegnum Íslenska Tónverkamiðstöð.
Úlfar Ingi Haraldsson lauk doktorsprófi í tónsmíðum og tónfræðum frá University of California árið 2000. Verk hans hafa verið flutt víða á tónleikum bæði á Íslandi og erlendis. Úlfar hefur einnig komið víða fram sem flytjandi og stjórnað eigin verkum og annarra hérlendis og erlendis. Hann hefur einnig starfað sem bassaleikari í margvíslegri tónlist er tengist klassík, nútímatónlist, djass og spuna. Hann starfar nú sem tónlistarkennari við ýmsar menntastofnanir í Reykjavík ásamt því að vinna að eigin tónsmíðum og tónlistartengdum verkefnum.
Guðmundur Óli Sigurgeirsson um sjálfan sig:
“Mér er sagt að ég sé fæddur árið 1949. Við það miða ég aldur minn. Sunnlendingur er ég í húð og hár, fæddur í Hvolhreppi, uppalinn á Rangárvöllum, og á einnig ættir að rekja í Meðalland og á Síðu.
Frá því ég man eftir mér hef ég verið að semja lög. Flest hafa þó aldrei komist lengra en í koll mér og þaðan beint í gin óminnishegrans, sem ég tel að nærist á þessari iðju minni. Tónlistarnám hóf ég sem barn. Fyrsta hljóðfærið mitt var greiða sem með hjálp sellófans og raddbanda drengstúfs framleiddu misfögur hljóð, foreldrum mínum og búsmala þeirra til vafasams yndis. Þó sungu stundum með mér bæði hundur og kýr.
Tónlistarnámið hefur verið slitrótt. Drengur nam ég orgelleik í tvö ár í Tónlistarskóla Rangæinga, af Guðmundi heitnum Gilssyni. Meira varð eiginlegt tónlistarnám ekki lengi vel, en sem ungur maður hneigðist ég til rokkogróltrúar í anda Bítla, Kinks, Dúmbó og Steina og annarra goða þess tíma, og tók að fremja hljóð í anda slíkra með vinum mínum. Síðar bættust þyngri goð við, svo sem Led Zeppelin, Greatful Dead og ýmsir fleiri gaddavírs- og járnarokkarar.
Í Kennaraskólanum, hvar ég hafði tónmennt að valgrein, komst ég í kynni við Jón Ásgeirsson tónskáld, sem hafði mikil áhrif á tónlistarhugsun mína, ekki síst er frá leið. Það hefur svo orðið hlutskipti mitt í lífinu að kenna börnum, m.a. eilítið um músík og tónlist, en þau hafa jafnframt oft orðið mér hvatning til að iðka músík mína.
Á síðasta áratug 20. aldar varð mér það til happs að komast á viku námskeið í tölvutónsmíðum undir stjórn Sigfríðar Björnsdóttur. Þar kynntist ég svolítið undraheimi tónsmíðanna og fann að gaman væri að staldra við. Í framhaldi af því námskeiði settist ég svo á skólabekk veturinn 2000-2001 og nam tónlistarsögu, tónfræði og raftónsmíðar í Tónlistarskóla Kópavogs undir handleiðslu tónskáldanna Hilmars Þórðarsonar, Ríkharðs Friðrikssonar og fleiri góðra manna. Árin 2002 – 2004 var ég svo eins konar gestanemandi í raftónsmíðum í sama skóla og naut þar áfram leiðsagnar Hilmars Þórðarsonar auk Haraldar Vignis Sveinbjörnssonar tónskálds.
Árið 2008 gaf ég út með, hvatningu Menningarráðs Suðurlands, hljómdiskinn Raftúra? – electrical nature? sem er úrval rafverka minna frá 1 áratug 21. aldar. Diskurinn er gefinn út í 500 tölusettum eintökum og fæst m.a. í 12 tónum.”
Ríkharður H. Friðriksson gerir raftónlist sem fer tvær grundvallarleiðir; annað hvort gerir hann hreina víðóma afspilunartónlist þar sem unnið er með náttúruhljóð og hreyfingu þeirra í rými, eða hann iðkar lifandi spuna með rafgítar og vinnur hljóð hans áfram með tölvutækni. Í seinni geiranum kemur hann annað hvort fram einn eða með sveitinni Icelandic Sound Company.
Ríkharður kennir tónsmíðar, raftónlist og tónlistarsögu við Listaháskóla Íslands, Tónlistarskóla Kópavogs og Tónlistarskólann í Reykjavík.
Rikhardur H. Fridriksson is a musician whose music falls into two general categories; he either makes pure electro-acoustic music, working with natural sounds and their movement in space, or he does live improvisations, playing electric guitar, processed with live electronics, appearing either alone or with the Icelandic Sound Company.
- - -
(c) Icelandic Society of Composers 2009 - contact: kjol@lhi.is / hallivs@internet.is

