LAUGARDAGUR 7.Febrúar 2009
Saturday February 7th
14.00 @ Neskirkja
LAUGARDAGUR 7.Febrúar 2009
Saturday February 7th
14.00 @ Neskirkja
KAMMERKÓR SUÐURLANDS
Peter Tompkins, óbó
Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðla
Sigurður Halldórsson, selló
Steingrímur Þórhallsson, orgel
Stjórnandi:
Hilmar Örn Agnarsson
EFNISSKRÁ / PROGRAM
John Tavener (f. 1944)
The Lord´s Prayer 1999
- Faðir vor
Haraldur V. Sveinbjörnsson (f. 1975)
Ave Maria 1999
- latnesk bæn
Gunnar Andreas Kristinsson (f. 1976)
Vakið, verið viðbúnir 1999
- úr Lúkasarguðspjalli (12:35-40)
Örlygur Benediktsson (f. 1976)
Spekinni sungið lof 1999
- úr Orðskviðum Salómons (2:1-2:5)
Elín Gunnlaugsdóttir (f. 1965)
Weinet nicht 2009
fyrir kvennakór, fiðlu og selló
- texti úr Lúkasarguðspjalli
Gunnar Reynir Sveinsson (1933-2008)
Gloria 1984
- latnesk bæn
Bára Grímsdóttir (f. 1960)
Einum best eg unni 2008
fyrir kór, orgel og óbó
- ljóð: Einar Sigurðsson (1538-1626)
Haraldur Rúnar Sverrisson (f. 1976)
Hið sextánda 2009
fyrir kór og rafhljóð
- galdraþula úr Hávamálum
Hafsteinn Þórólfsson (f. 1977)
Komdu nú klár 2008
- ljóð: Hannes Pálsson og Hafsteinn Þ.
Eric Whitacre (f. 1970)
Sleep 2000
- ljóð: Charles Anthony Silvestri
NOKKUR ORÐ UM EFNISSKRÁNA
Kammerkór Suðurlands hefur á síðustu misserum verið í nánu sambandi við nokkra erlenda samtímahöfunda, þ.á.m. Bandaríkjamanninn Eric Whitacre og Bretann Sir John Tavener, sem var staðartónskáld Sumartónleika í Skálholti árið 2004. Þessir tveir höfundar eiga hér hvor sitt verkið, við upphaf og í lok tónleikanna.
Í ár verða 10 ár liðin frá því að Kammerkórinn flutti á Sumartónleikum í Skálholti sérstaka tónleikadagskrá; „Íslensk trúartónlist í 1000 ár“, með tilvísun í komandi Kristnitökuhátíð árið eftir. Af því tilefni var m.a. leitað til tónsmíðanemenda í þáverandi tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík og kórverk þeirra flutt. Nú vildum við endurtaka leikinn; rifja upp kynnin af þessum „gömlu“ nemendaverkum þeirra Haraldar Vignis, Gunnars Andreasar og Örlygs ― og bjóða jafnframt nemendum tónsmíðadeildar LHÍ til samstarfs. Það eru þeir Haraldur Rúnar og Hafsteinn, sem þreyta hér frumraun sína á sviði kórtónlistar, en öll hin íslensku tónskáldin á efnisskránni áttu verk á tónleikunum fyrir 10 árum.
Elín Gunnlaugsdóttir og Bára Grímsdóttir eru báðar góðkunningjar Kammerkórsins, ef svo má segja. Framlög þeirra í dag eru hvorttveggja frumflutt hér á landi. Weinet nicht er samið við texta úr Lúkasarguðspjalli (23:28, 29 og 31), þar sem Jesús ávarpar kvennahóp: „[...] grátið ekki yfir mér, en grátið yfir sjálfum yður og börnum yðar [...]“. Verkið er upphaflega fyrir tvær einsöngsraddir, en nú hljómar í fyrsta sinn ný endurgerð fyrir kvennakór, fiðlu og selló. Verk Báru, Einum best eg unni, var pantað í tilefni af 25 ára afmæli íslenska safnaðarins í Lundúnum, sem frumflutti verkið í Sænsku kirkjunni þar í borg, 2. nóvember sl. Kvæðið er úr smiðju séra Einars Sigurðssonar í Eydölum, sem var eitt helsta sálmaskáld Íslendinga á sinni tíð, einna helst kunnur fyrir Kvæði af stallinum Kristí („Nóttin var sú ágæt ein“).
Sérstakan sess á efnisskránni skipar Gloria Gunnars Reynis Sveinssonar. Frá upphafi hefur tónlist hans átt ríkulegan þátt í tilveru Kammerkórsins og athöfnum, og með innilegu þakklæti fyrir list hans og líf viljum við með flutningnum í dag minnast tónskáldsins, sem lést fyrir ári síðan.
Hilmar Örn Agnarsson (f. 1960) hóf tónlistarferil sinn við Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Hann lauk tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1983, þar sem aðalkennari hans var Jónas Ingimundarson. Að útskrift lokinni starfaði hann sem organisti og kórstjóri í Þorlákshöfn, en hélt þaðan til Þýskalands ― í Hochschule für Musik und Darstellende Kunst í Hamborg, og útskrifaðist þaðan sem kantor eftir sjö ára nám. Helstu kennarar hans voru Gerhard Dickel og Rose Kirr. Árið 1991 var hann ráðinn organisti við Skálholtsdómkirkju og stjórnaði þar öflugu tónlistarlífi en lét af störfum þar síðla árs 2008. Hilmar tók við stöðu organista í Kristkirkju, Landakoti í Reykjavík í upphafi árs 2009.
Hilmar var á árum áður bassaleikari og lagasmiður í hljómsveitinni Þeyr. Hann starfar á Suðurlandi með ýmsum tónlistarhópum, s.s. gyðingabandinu Kol-isha og sálmabandinu Lux terrae. Hann er stofnandi og stjórnandi Kammerkórs Suðurlands og Barna- og kammerkórs Biskupstungna, ásamt því að vera stjórnandi Skálholtskórsins.
Um nokkurt skeið hefur Hilmar Örn átt í samstarfi við ljóð- og söngvaskáldið Megas. Á Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar í febrúarmánuði 2006 stjórnaði hann tónleikum í Hallgrímskirkju, þar sem Megas söng lög sín við Passíusálma Hallgríms Péturssonar, og naut þar aðstoðar Barna- og kammerkórs Biskupstungna. Tónleikarnir voru einnig fluttir í Skálholtskirkju um páskana 2006.
Hilmar Örn dvaldi í Berlín hluta árs 2008, þar sem hann nam og starfaði við margvísleg tónlistarverkefni, auk þess að vinna að nýjasta útgáfuverkefni Kammerkórsins, diski með verkum eftir Sir John Tavener. Þar syngur kórinn ásamt einsöngvurunum Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur mezzósópran og Hrólfi Sæmundssyni barítón. Fyrirhugað er að sá diskur komi út á þessu ári.
Steingrímur Þórhallsson fæddist árið 1974 og ólst upp á Húsavík þar sem hann hlaut sína fyrstu tónlistarmenntun við Tónlistarskólann á Húsavík. 17 ára flutti hann til Reykjavíkur og lauk píanókennaraprófi 1998 frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir leiðsögn Önnu Þorgrímsdóttur, píanókennara og kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar með Martein H. Friðriksson dómorganista sem orgelkennara. Þá um haustið lá leiðin til Rómar í Kirkjutónlistarskóla Páfagarðs, og útskrifaðist hann þaðan 2001 með Magistero di organo. Þar var hans aðalkennari Giancarlo Parodi.
Haustið 2002 var Steingrímur ráðinn organisti við Neskirkju, eftir að hafa starfað um tíma sem skólastjóri Tónlistarskólans á Hólmavík. Steingrímur hefur víða komið fram á tónleikum, m.a. á tónlistardögum Dómkirkjunnar, í Hallgrímskirkju, Skálholti, Selfossi og í Reykholti.
Steingrímur er listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar ”Tónað inn í aðventu” sem er listahátíð Neskirkju. Hátíð stendur í um tvær vikur og lýkur í byrjun aðventu. Steingrímur er jafnframt stjórnandi tónlistarhópsins Rinascente sem sérhæfir sig í endurreisnartónlist.
Peter Tompkins hefur leikið á óbó og píanó frá unga aldri. Hann lauk einleikaraprófi frá Royal College of Music og tónlistarkennaraprófi frá Royal Academy of Music í Lundúnum. Peter fæddist á Englandi en hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1988. Peter er fastráðinn óbóleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, stofnfélagi íslenska saxófónkvartettsins, meðlimur í Bachsveitinni í Skálholti og kennir í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Allt frá komu sinni til Íslands hefur hann tekið virkan þátt í tónleikahaldi hér á landi bæði sem einleikari og flytjandi hljómsveitar-, óperu-, leiklistar-, kvikmynda-, kammer- og kirkjutónlistar. Peter hefur komið fram á tónleikum víða utan Íslands, m.a. á Norðurlöndunum, víða í Evrópu og í Bandaríkjunum. Peter var heiðurslaunþegi menningarsjóðs Garðabæjar árið 2000.
Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari hlaut tónlistarmenntun í Tónlistarskóla Garðahrepps, Tónskóla Sigursveins D. Kristinnssonar, Skólakór Garðabæjar og Tónlistarskólanum í Reykjavík þaðan sem hún lauk einleikaraprófi haustið 1987. Hildigunnur stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum við Eastman tónlistarháskólann í Rochester, New York, lauk Bachelorsprófi árið 1990 og Mastersprófi árið 1992. Þá var hún fastráðin fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og gerðist félagi í Caput hópnum. Hildigunnur leikur einnig með tónlistarhópunum Camerarctica, Contrasti, Camerata Drammatica, Kammersveit Reykjavíkur og Bachsveitinni í Skálholti. Hún hefur einnig sungið með sönghópnum Hljómeyki og Schola Cantorum í Hallgrímskirkju og útskrifaðist með lokapróf í söng frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar vorið 2003. Hildigunnur var valin bæjarlistamaður Garðabæjar árið 1995, hún hefur haldið fjölda einleikstónleika auk þess að koma fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kammersveit Reykjavíkur. Hildigunnur hefur oft komið fram á tónlistarhátíðum hér heima m. a. Sumartónleikum í Skálholti og Berjadögum í Ólafsfirði, og erlendis og leikið inn á fjölda geisladiska með þeim tónlistarhópum sem hún starfar með.
Sigurður Halldórsson lauk námi frá Guildhall School of Music sumarið 1990 og hefur síðan starfað sem kennari, einleikari og kammertónlistarmaður. Hann hefur fengist við fjölbreytilega tónlistarstíla allt frá miðöldum til nútímans og starfar með Caput hópnum, Voces Thules, Camerarctica, Skálholtskvartettinum og Bachsveitinni í Skálholti. Hann hefur, bæði sem einleikari og með fyrrnefndum hópum, komið fram á alþjóðlegum listahátíðum víða um Evrópu, Norður-Ameríku og Japan, og hljóðritað fjölda hljómdiska. Sigurður hefur flutt stóran hluta tónbókmenntanna fyrir selló og píanó vítt og breitt, bæði á Íslandi, austan hafs og vestan ásamt Daníel Þorsteinssyni píanóleikara, en þeir hafa starfað saman í aldarfjórðung. Þá hefur hann leikið allar einleikssvítur Bachs á Sumartónleikum í Skálholtskirkju og hljóðritað sellókonserta eftir Vivaldi með Bachsveitinni í Skálholti og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hefur tileinkað sér þá vinnuaðferð að leika alla tónlist á hljóðfæri í stíl hvers tíma að því marki sem aðstæður leyfa. Hann hefur alla tíð sem tónlistarmaður verið virkur í skipulagningu á tónleikahaldi og hljóðritunum. Hann var einn af stofnendum og aðalaðstandenum 15:15 tónleikasyrpunnar sem sett var á fót árið 2002. Þá hefur hann starfað sem listrænn stjórnandi Sumartónleika í Skálholtskirkju síðan í desember 2004. Sigurður kemur oft fram á vettvangi impróviseraðrar tónlistar. Hann hefur unnið í leikhúsi, m.a. að nokkrum tilraunasýningum í dans- og músikleikhúsi. Hann hefur haldið ýmis námskeið og fyrirlestra og stundað kennslu í sellóleik og kammertónlist. Hann er fagstjóri í nýrri mastersgráðu sem Listaháskóli Íslands stendur að í samvinnu við fjóra aðra tónlistarháskóla í Evrópu.
Kammerkór Suðurlands var stofnaður árið 1997 og er skipaður tónlistarmönnum og áhugafólki víðsvegar af Suðurlandi. Stofnandi og stjórnandi frá upphafi er Hilmar Örn Agnarsson organisti. Kórinn hefur komið víða við og flutt andlega og veraldlega tónlist frá ýmsum tímum.
Hann hefur m.a. tekið þátt í Sumartónleikum í Skálholti og flutt þar verk eftir Karólínu Eiríksdóttur, Gunnar Reyni Sveinsson og fleiri – auk tónleika sumarið 1999 undir yfirskriftinni „Íslensk kirkjutónlist í 1000 ár“. Hluti þeirrar efnisskrár var gefinn út á hljómdisknum Ég byrja reisu mín árið 2000.
Á Sumartónleikum í Skálholti árið 2004 flutti kórinn tónlist eftir breska tónskáldið Sir John Tavener, og var það í fyrsta sinn sem samfelld dagskrá með verkum eftir þennan virta tónhöfund er flutt hér á landi. Eitt verkið, Schuon Hymnen, samdi Tavener sérstaklega fyrir kórinn, sem frumflutti það við þetta tækifæri.
Í samvinnu við Smekkleysu og Íslenska tónverkamiðstöð kom svo út hljómdiskurinn Til Máríu, með flutningi Kammerkórsins ásamt einsöngvurum á tónverkum Gunnars Reynis Sveinssonar. Tilefni útgáfunnar var sjötugsafmæli tónskáldsins árið 2003.
Haustið 2005 flutti Kammerkórinn, ásamt hljómsveit Kjartans Valdimars-sonar, söngdagskrá með lögum eftir alþýðutónskáldið og Ölfusinginn Guðmund Gottskálksson, á tónlistarhátíðinni „Tónar við hafið“ í Þorlákshöfn. Sú efnisskrá kom svo út á hljómdisknum Á hugarhimni mínum á 75 ára afmæli Guðmundar, 16. apríl 2006.
Kórinn hefur einnig komið fram í Sjónvarpinu ― m.a. í hátíðardagskránni Kveðja frá Ríkisútvarpinu sem send var út á gamlárskvöld 2005, auk söngs í Kastljósinu og menningarþættinum Mósaík.
Kammerkór Suðurlands fór svo í sína fyrstu söngferð erlendis sumarið 2007, og söng þá á þrennum tónleikum í Alsace-héraði í Frakklandi, á íslenskri menningarhátíð á vegum fransk-íslensku menningarsamtakanna ALSACE-ISLANDE. Með kórnum í för voru Gunnar Þórðarson tónskáld og einsöngvararnir Hrólfur Sæmundsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú.
The South Iceland Chamber Choir was formed in 1997, consisting of musicians and music lovers from towns and rural areas all around the South Coast of the country. It´s founder, organist Hilmar Örn Agnarsson, has directed the choir from the beginning, working with an eclectic range of repertoire from many times and places.
It has released three CD´s: Ég byrja reisu mín (“I begin my journey”) in 2000, presenting a historical review of religious music by various Icelandic composers; Til Máríu (“To the Virgin Mary”) in 2005, containing vocal music of Gunnar Reynir Sveinsson; and the latest one, Á hugarhimni mínum (“In the heaven of my mind”) features a collection of melodies and tunes by the local Southerner and amateur composer Guðmundur Gottskálksson.
The choir has performed regularly at the Skálholt Summer Concerts Festival, including portrait concerts of it´s composers-in-residence, a.o. Karólina Eiríksdóttir, Gunnar Reynir Sveinsson and Sir John Tavener, whose setting of The Lord´s Prayer opens today´s concert. It´s worth mentioning that the choir intends to release a new CD with Tavener´s music, the material has already been recorded and is due to be published soon.
Today´s programme is partly a re-visit to one of the choir´s first appearances at the Skálholt Summer Concerts Festival in 1999, when it gave a concert called “A Millenium of Icelandic Sacred Music”, referring to the 1000th anniversary of the nation´s Christianity in the upcoming year of 2000. On that occation, new pieces were commissioned from three students of composition, all of which are performed again today ― by Sveinbjörnsson, Kristinsson and Benediktsson. All the other Icelandic composers on this programme also had pieces performed at that particular concert ten years ago, except for the two newcomers ― students from the Iceland Academy of the Arts ― Sverrisson and Þórólfsson, who are now about to have their first choral music premièred.
Two pieces have not been performed in Iceland before: Gunnlaugsdóttir´s Weinet nicht (“Weep not”), is set to the words of Jesus from the Gospel according to Luke (23:28, 29 and 31). Grímsdóttir´s Einum best eg unni (“One I loved the best”), makes use of an old Icelandic hymnic poem of praise to Christ the Saviour, by 16th century reverend Einar Sigurðsson.
Composer Gunnar Reynir Sveinsson passed away in February last year. Today, his Gloria is sung in memory of Sveinsson´s excellent artistic spirit, and with the sincerest gratitude for his remarkable musical contribution.
(c) Icelandic Society of Composers 2009 - contact: kjol@lhi.is / hallivs@internet.is
