LAUGARDAGUR 7.Febrúar 2009
Saturday February 7th
17.00 @ Hafnarborg
LAUGARDAGUR 7.Febrúar 2009
Saturday February 7th
17.00 @ Hafnarborg
TINNA ÞORSTEINSDÓTTIR, píanó
FRANK AARNINK, slagverk
Efnisskrá / Program:
Anna S. Þorvaldsdóttir: [One] 2008 – frumflutningur / premiere
Karólína Eiríksdóttir: Sýsl á víxl f. marimbu og píanó 2009 - frumflutningur
Áskell Másson: Klukkan 2009 - frumflutningur
Hlé / Intermission
Páll Ivan Pálsson: Tókastaðir 2009 - frumflutningur
Þuríður Jónsdóttir: Wide Shot f. píanó 2007 - frumflutningur
Steingrímur Rohloff: Repercussion 2007 - frumflutningur á Íslandi
Áki Ásgeirsson: 319° 2009 - frumflutningur
UM FLYTJENDUR / ABOUT THE PERFORMERS:
Tinna Þorsteinsdóttir hefur lengi verið virk í íslensku tónlistarlífi og frumflutt hátt á annan tug verka sem hafa sérstaklega verið skrifuð fyrir hana. Hún hefur starfað með íslenskum tónskáldum sem og þeim Helmut Lachenmann, Christian Wolff, Morton Subotnick, Evan Ziporyn og Greg Davis. Á Myrkum Músíkdögum 2005 hélt hún einleikstónleika þar sem hún frumflutti fimm íslensk píanóverk. Í kjölfarið flutti hún sömu efnisskrá á listahátíðinni Nordischer Klang í Þýskalandi, í Berlín, Peking, á Listahátíðinni í Bergen í seríunni Unge Talenter 2006 og í Kaupmannahöfn 2007. Vorið 2007 endurtók hún leikinn og frumflutti þá fimm íslensk píanóverk á Listahátíð í Reykjavík. Tinna hefur m.a. komið fram á Bang on a Can maraþoni í San Francisco, í Portúgal, Austurríki og Boston. Hún stundaði nám í Hannover og Münster í Þýskalandi og síðar við New England Conservatory of Music í Boston hjá Stephen Drury. Tinna hlaut Fulbright styrk og Thor Thors styrk frá The American-Scandinavian Foundation. Hún er píanóleikari salon hljómsveitarinnar L'amour fou og tónlistarhópsins Njúton. Fyrsti geisladiskur Tinnu kom út hjá Smekkleysu árið 2007. Hann ber nafnið Granit Games og inniheldur íslensk píanóverk.
Tinna Thorsteinsdóttir has a broad experience with new piano music and has premiered many solo pieces especially written for her. She has worked with Icelandic composers, as well as Helmut Lachenmann, Christian Wolff, Morton Subotnick, Evan Ziporyn and Greg Davis. Tinna premiered five Icelandic piano pieces in a concert at the Dark Music Days Festival in 2005 and performed the program furthermore at the Nordischer Klang festival in Germany, in Berlin, Beijing, at the Bergen International Festival 2006 in the Series Young Talents and in Copenhagen 2007. Tinna again gave a solo recital at the Reykjavík Arts Festival in 2007 where she premiered five Icelandic pieces. Some other performances include the Bang on a Can Marathon in San Francisco, performances in Portugal, Austria and Boston. Tinna studied in Hannover and Münster in Germany and at the New England Conservatory of Music in Boston with Stephen Drury. She received a Fulbright scholarship and the Thor Thors grant from the American-Scandinavian Foundation. Tinna is the pianist of the salon band L'amour fou and the new music group Njúton. Her first solo CD Granit Games with Icelandic piano music was released in 2007 with Bad Taste Records.
Frank Aarnink stundaði nám í Hilversum og Amsterdam. Hann hefur spilað með flestum af þekktustu sinfóníuhljómsveitum og blásarasveitum Hollands og tekið þátt í mörgum óperu- og söngleikjauppfærslum þar í landi. Frá árinu 2001 hefur Frank verið fastráðinn sem slagverks- og pákuleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Eftir að Frank fluttist til Íslands hefur hann tekið virkan þátt í tónlistarlífi Íslendinga. Hann hefur m.a. starfað sem slagverksleikari við Íslensku óperuna, slagverkshópinn Bendu, Kammersveit Reykjavíkur, Caput, Atón og Lúðrasveit Reykjavíkur. Íslensk tónskáld hafa samið sérstaklega tónverk fyrir hann, þar á meðal eru tónskáldin Daníel Bjarnason og Anna S. Þorvaldsdóttir. Frank er slagverkskennari í Tónlistarskóla FÍH. Einnig kennir hann slagverk við Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar.
Frank Aarnink studied in Hilversum and Amsterdam. He has performed with most of Netherlands´ renowned symphony orchestras, wind ensembles and has participated in various opera and musical productions as well. From the year 2001 Frank has been engaged as percussionist and timpanist with the Iceland Symphony Orchestra. Since moving to Iceland Frank has been very active in the Icelandic music scene. Some of his activities include performances with the Icelandic Opera, the percussion ensemble Benda, the Reykjavík Chamber Orchestra, Caput, Atón and the Reykjavík City Band. Frank has worked with many Icelandic composers, who have written pieces for him, among others Daníel Bjarnason and Anna S. Þorvaldsdóttir. Frank is a percussion teacher at the FÍH School of Music.
UM VERKIN / ABOUT THE MUSIC
[one]
Tvær hliðar sömu vitundar / two sides of the same consciousness
(ASÞ)
319° er samið í janúar 2009 / ...is written in january 2009. (ÁÁ)
Sýsl á víxl er skrifað fyrir Tinnu og Frank og var smíði verksins lokið í janúar 2009. Þegar stendur til boða hinn fjölbreytti hljóðheimur slagverks og píanós er úr mörgu að velja. Ég tók þá ákvörðun að einskorða mig við marimbu og píanó og einbeita mér að skyldleika en jafnframt fjölbreytileika þessara hljómfögru hljóðfæra. (KE)
Wide Shot var skrifað fyrir Tinnu Þorsteinsdóttur árið 2007. Nafnið er tæknimál í ljós- og kvikmyndalist.
Sjónarhornið í verkinu er vítt og er hlustandanum ætlað að sjá heildaráferðina frekar en fína drætti. (ÞJ)
Tókastaðir
Sveitarfélag: Austur-Hérað
Landshluti: Austurland
Landsnúmer: 158101
Heildarstærð: 955 ha
Paddi: 4 lappir
Hljóð: Klikk klúkk krrr
(PIP)
Repercussion
Spunagleði, uppgötvunarþörf og óvenjulegur hljómblær dúósins Pollkötter/Awolin stýrði höndum mínum þegar ég samdi fyrir það þetta verk. Tilraunir með framandi hljóð, þá fyrst og fremst með „preparasjónum“ í píanóinu, flæddu þannig beint inn í verkið. Á ákveðinn hátt er þess konar verk alltaf ávöxtur samvinnu, en það eru vinnubrögð sem ég sækist gjarnan eftir. Oft sæki ég innblástur í aðstæður sem eru þá þegar fyrir hendi. Þannig heyrast partar sem eru tilkomnir úr spuna dúósins ásamt augljósum óvenjulegum hljóðsamsetningum. Hljóðfæraleikararnir fá eingöngu í hendur efni sem þróast oft út í hraðar, óreglulegar fígúrur, sem er í sjálfu sér ekki svo óvenjulegt í heimi nýrrar tónlistar, en ég leitaði einnig eftir náttúrulegu flæði úr frjálsu í fast form. Sem sagt, REPERCUSSION stendur fyrir ákveðinn frjálsleika á tveimur sviðum: Hljóðfæraleikararnir hreyfa sig í frjálsu formi samleiksins og ég tek mér það frelsi að þróa venjulegan tónheim með tilraunastarfsemi hljóða. REPERCUSSION var pantað af Kunststiftung NRW. (SR)
Í ævintýrinu Klukkunni eftir H. C. Andersen segir frá fólki í einni stórborginni sem þykist heyra í fagurri kirkjuklukku innan um borgarskarkalann enda þótt enginn gæti bent á hvaðan hljómurinn kæmi. Var helst sem hljóðið kæmi úr nærliggjandi skógi enda þótt engin væri þar kirkjan né klukkan. Sætabrauðsbakarinn, grænmetissalinn, fermingardrengir og aðrir í þorpinu heyra hver á sinni hátt í klukkunni og átti enginn orð yfir feguð hljómsins sem hafði þau áhrif að fólki fannst sem allir hlutir öðluðust ævintýralega fegurð á meðan hans naut.
Þetta verk er samið eftir lestur þessarar sögu. Það er nær eingöngu byggt á yfirtónaröð kirkjuklukku sem hefur grunntóninn Es.
Verkið er sérstaklega samið fyrir þau Tinnu og Frank, en tileinkað sonarsyni mínum, Ísari Leó Davíðssyni.
Auk píanósins, er leikið á 3 lítil stangargjöll, sópran-víbrafón, bassa-klukkuspil, klukkugjöll úr afa-klukku, symbala, leikfanga-píanó, 8 litlar bjöllur, Dulcitone, 6 lítil gler-rör, spiladós og að sjálfsögðu kirkjuklukku með grunntóninn Es.
This work was composed after the reading of a fairy-tale by H. C. Andersen describing a mystical church bell which enchants people in an unnamed city. The piece is almost exclusively based on the overtones of a church bell with the fundamental E-flat. (ÁM)
(c) Icelandic Society of Composers 2009 - contact: kjol@lhi.is / hallivs@internet.is





