LAUGARDAGUR 7.Febrúar 2009
Saturday February 7th
20.00 @ Guðríðarkirkja
LAUGARDAGUR 7.Febrúar 2009
Saturday February 7th
20.00 @ Guðríðarkirkja
CAPUT
Stjórnendur:
Philippe Manoury
&
Guðni Franzson
Kolbeinn Bjarnson, flauta
Eydís Franzdóttir, óbó
Ármann Helgason, klarinetta
Brjánn Ingason, fagott
Emil Friðfinnsson, horn
Eiríkur Örn Pálsson, trompet
Sigurður Þorbergsson, básúna
Per Forsberg, túba
Steef van Oosterhout, slagverk
Kjartan Guðnason, slagverk
Frank Aarnink, slagverk
Þorvaldur Þór Þorvaldsson, slagverk
Elísabet Waage, harpa
Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanó/selesta
Valgerður Andrésdóttir, píanó
Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla,
Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðla
Svava Bernharðsdóttir, víóla
Sigurður Halldórsson, selló
Hávarður Tryggvason, kontrabassi.
EFNISSKRÁ / PROGRAM:
Philippe Manoury: Jupiter fyrir flautu og rafhljóð
Einar Torfi Einarsson: Nine tensions
Atli Heimir Sveinsson: Hlými
Hlé / Intermission
Philippe Manoury: Instant pluriels fyrir tvo hljóðfærahópa
CAPUT er styrkt af Reykjavíkurborg og Menntamálaráðuneyti.
Um CAPUT / About CAPUT
CAPUT-hópurinn var stofnaður 1987 af ungum íslenskum tónlistarmönnum í þeim tilgangi að flytja nýja tónlist.
CAPUT hefur frumflutt fjölda íslenskra og evrópskra tónverka og haldið tónleika Norður-Ameríku og í 15 löndum Evrópu.
CAPUT hefur komið fram á fjölmörgum tónlistarhátíðum í Evrópu, í Ameríku og á Íslandi. Hér má nefna: „Haust í Varsjá“, Gulbenkian hátíðina í Lissabon, New Concert Series í Toronto, Santa Secilia í Róm, Wigmore Hall í London, Holland Festival í Amsterdam, Listahátíð í Færeyjum, Listahátíð í Reykjavík og Sumartónleika í Skálholtskirkju.
CAPUT hefur gefið út níu hljómdiska í Danmörku, Svíþjóð, Ítalíu, Bandaríkjunum og á Íslandi. Auk þess hafa hljóðritanir hópsins komið út á sjö safndiskum.
CAPUT er leiðandi afl í nýrri tónlist á Íslandi og er á meðal fremstu tónlistarhópa í Evrópu sem fást við nýja tónlist. Hópurinn hefur hvarvetna hlotið lof fyrir kraftmikla túlkun og tæknilega yfirburði.
CAPUT hlaut menningarverðlaun Dagblaðsins árið 1995 og hafa tónverk flutt af hópnum margoft verið valin til kynningar á Alþjóðlega tónskáldaþinginu í París.
The new music ensemble CAPUT was founded in 1987 by young Icelandic musicians. It started as a small chamber group but grew rapidly to a sinfonietta with up to 18 players. The size of CAPUT has always been flexible. Each member can stand out as a soloist and the ensemble plays duos, trios, quartets, octets etc.
The "childhood" of CAPUT was spent in Iceland but since 1992 the ensemble has given numerous concerts abroad. The first tour was organised by Italian composers, forming the group "Nuove Sincronie" and Gaudeamus in Holland with concerts in Amsterdam, Bonn and Milan. Now CAPUT has performed in 15 European countries, in Canada, USA and Japan. On the list are among others:
•Warsaw Autumn Festival
•The Gulbenkian Festival in Lisbon
•Holland Festival
•Prague Marathon
•The International New Music Week in Bucharest
•New Concert Series in Toronto and
•Santa Cecilia in Rome
CAPUT organizes it's own concert series in Iceland but also takes part in festivals like the Dark Music Days and Reykjavík Arts Festival.
The first CD was made for the Italian label "Stradivarius" in 1993 with music by Aldo Clementi and Riccardo Nova. CAPUT has now made 14 CDs for labels in Iceland, Denmark, Sweden, Italy, England and the United States. A collaboration with the Swedish label BIS began in 1997 with Haukur Tómasson’s "Gudrun fourth Song." The latest CD with BIS is with the music of Atli Ingólfsson.
CAPUT has premiered countless works by Icelandic and "Overseas" composers – everything is overseas for Icelanders. Among composers that have written for or worked with CAPUT are:
•Bent Sörensen, Denmark
•Olaf Anton Thommesen, Norway
•Doina Rotaru, Romania
•Jukka Koskinen, Finaland
•Veli Matti Puumala, Finaland
•Aldo Clementi, Italia
•Fausto Romitelli, Italia
•Allesandro Solbiati Italia
•Toshio Hosokawa, Japan
•Misato Mochizuki, Japan
•Hiroyuki Itoh, Japan
Most Icelandic composers have worked with CAPUT, some of them from beginning.
CAPUT has established itself as a force in Icelandic cultural life and as one of the leading new music ensembles in Nordic countries. The group is widely acclaimed for its powerful interpretation and technical proficiency. Performances by CAPUT have often been presented at the annual International Rostrum of Composers in Paris.
Um tónskáldin / About the composers
Einar Torfi Einarsson stundaði tónsmíðanám við Tónlistarskólann í Reykjavík undir handleiðslu Guðmundar Hafsteinssonar, Hróðmars Inga Sigurbjörnssonar og Kjartan Ólafssonar. Hann hélt til framhaldsnáms við Conservatorium van Amsterdam árið 2005 til að nema hjá Fabio Nieder. Einar Torfi stundar nú masternám í Amsterdam hjá Richard Ayres, Willem Jeths og Fabio Nieder. Einnig stundar hann tímabundið nám hjá Beat Furrer í Graz.
Tónlist Einars Torfa hefur verið flutt á Íslandi, Norðurlöndunum og víðar í Evrópu. Einar Torfi hefur unnið með Nieuw Ensemble og Asko Ensemble í Amsterdam.
Einar Torfi Einarsson studied composition at Reykjvík College of Music with Guðmundur Hafsteinsson, Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson and Kjartan Ólafsson, and further composition studies at the Conservatorium van Amsterdam with Fabio Nieder. He now undergoes a master-programme at the Conservatorium with Richard Ayres, Willem Jeths and Fabio Nieder. Also, temporarily he studies with Beat Furrer in Graz. His music has been performed in Iceland, Scandinavia and other places in Europe. Einar Torfi has worked with the Nieuw Ensemble and Asko Ensemble in Amsterdam.
Um verkin / About the music
Hlými
Ég hlustaði á Hlými nýlega í flutningi útvarpshljómsveitarinnar í Varsjá.
Ég samdi þetta verk fyrir nær hálfri öld og það var mitt ópus eitt.
Núna finnst mér Hlými vera þunglyndislegur impressjónismi í búningi raðtækninnar.
Ég reyndi að búa til hljóðeyjar í þagnarhafinu, sýna fram á einingu hljóðs og þagnar: hljóð rennur inn í þögn, vex líka út úr henni.
Tónn umbreytist í hávaða og hávaði leysist upp í tón.
Í Hlými líðum við frá einu ástandi til annars.
Ég reyndi að búa til algjört tímaleysi. Er ekki tíminn “...eins og kringlótt smámynt sem er reist er upp á rönd.” ? Þannig orti Steinn Steinarr.
Hér voru engin stef sem unnið var með, engin úrvinnsla í hefðbundinni merkingu.
Ég vann mikið með fíngerð litbrigði í hljóðblöndun hljóðfæranna, bjó til melódíu litanna: Klangfarbenmelodie.
Ég notaði nýstárlegar leikaðferðir á hljóðfærin og bjó til ný “hljóðfæri”: glerrúður og flöskur eru brotnar.
Hörður Ágústsson listmálari sagði um verkið: “Ég sá hljóðfærin, en heyrði eitthvað sem hljómaði allt öðruvísu en það sem ég hafði áður heyrt þessi hljóðfæri gera.”
Og ég bjó til grúppu- og mómentform: ný hugtök, sem Stockhausen fann upp, Ég eins og margir aðrir botnuðu lítið í þeim pælingum meistarans.
Og um hvað snýst svo þetta allt?
Ég var að gera upp við námsárin, áhrifin frá Köln og Darmstadt, leita að persónulegum og tjáningarríkum stíl sem væri ólíkur því sem aðrir voru að gera.
Þegar verkið var flutt hér heima undir minni stjórn, á Musica nova-tónleikum, sennilega 1964, var því vel tekið af áheyrendum, en gagnrýnendur sölluðu það niður og músikpáfar landsins vöruðu söfnuði sína við “tóninu frá Köln” - AHS
Nine Tensions
Skrifað fyrir stofnverkefni við Ligeti Academy sem frumflutti verkið í Muziekgebouw í Amsterdam 15. maí 2008. Verkið fékk Henriëtte Bosmansprijs verðlaunin síðastliðinn nóvember, verðlaun veitt af Hollenska Tónskáldafélaginu.
Eins og titill verksins bendir til er um að ræða níu þætti eða níu lítil smáverk sem saman mynda heild. Í fyrstu fimm þáttunum er um stöðuga framsetningu á nýjum efnivið að ræða, mismunandi litir og misháir styrkleikar á þéttleika eru kannaðir. Fimmti þátturinn, sem stingur í stúf við hina þættina, lítur til baka á fyrri hreyfingar og afleiðing af því verður afgangur verksins, þ.e.a.s. sjötti til níundi þáttur endurtekur efnivið fyrstu fjóra þáttana í öfugri röð. Þessi endurtekning myndast þó á ákveðinn sjálf-rannsakandi og umbreyttan hátt.
Kannanir á hljóðfæralit, og mismunandi tegundir af spennum (tensions): tíma-spennur, hrin-spennur og hljóð-spennur, ásamt hljóð-einingu, voru mín megin umhugsunarefni við gerð verksins. Ég hugsa tónlistarhópinn sem eitt hljóðfæri sem hinar ýmsu hliðar á eru kannaðar í gegnum form verksins.
Nine Tensions
The piece was written for the pilot-programme of the Ligeti Academy, which premiered the piece in Muziekgebouw in Amsterdam in May 2008. The piece was awarded the Henriëtte Bosmansprijs 2008.
As the title suggests the piece is made out of nine movements or nine small pieces, which together create a whole. For the first 5 movements there is a steady confrontation of new material, different colours and various degrees of substantiality is explored. In the fifth movement (which is a contrast towards the rest) the piece looks back on itself and through movement 6 until 9 there is an iteration of the first four movements in a reversed order. This iteration comes through in a slightly self-examined and transformed way, i.e. some things from previous movements get a special attention and focus.
Exploring instrumental colours and different kind of tensions; tensions of time, rhythm and tensions of sounds, as well as unity of sound, were my main concerns whilst composing this piece. The whole ensemble is thought of as one single instrument, which then, different aspects of, is explored through the form of the piece. - ETE