SAMBAND

SUNNUDAGUR 8.Febrúar 2009

Sunday February 8th


14.00 @ Salurinn, Kópavogi

Program_2009.html
SAMBANDmailto:hallivs@hive.is?subject=RE:%20MMD%2009
DAGSKRÁProgram_2009.html
 



MARTIAL NARDEAU, flauta

GUÐRÚN BIRGISDÓTTIR, flauta

SNORRI SIGFÚS BIRGISSON, píanó



EFNISSKRÁ / PROGRAM:


Mist Þorkelsdóttir (1960):  Krummavísa (1996)

Snorri Sigfús Birgisson (1954): Partíta  (1995/’97/2002)

Mist Þorkelsdóttir: Afagull  (2001)

 

Hlé / Intermission

 

Snorri Sigfús Birgisson: Hlið við hlið (1997/2003)

Kjartan Ólafsson (1958):  Calculus 2  (2009) frumfl.

Kjartan Ólafsson:  Calculus  (1990)

Klaus Ager (1946): Zweite Elegie (2001)



Efnisskrá (pdf-skjal) / program (pdf)05Martial09_files/05%20MARTIAL.pdf


-----------------------------------------------------------------------------------------------------


Um verkin / About the music


Mist Þorkelsdóttir (1960): 

 

Krummavísa (1996) 8mn fyrir einleiksflautu.

 

Mist samdi Krummavísu í Boston árið 1996 fyrir Magneu Árnadóttur frænku sína sem þá var að útskrifast sem flautuleikari. Mist segir um verkið: "Mig langaði að skrifa eitthvað þjóðlegt en jafnframt gefa flautuleikaranum færi á að sína að hann kynni ýmislegt fyrir sér".

 

Afagull (2001) 9mn. fyrir tvær flautur.

  

Fjölskyldubönd hafa getið af sér sérstakt tónsmíðaform hjá Misti Þorkelsdóttur: Hverju barna sinna þriggja hefur hún tileinkað flautuverk.  Fyrst komu einleiksverkin Rún og Við stokkinn handa Guðrúnu Misti og Þorkeli Helga.  Hér gefur síðan að heyra þriðja verkið í röðinni, dúettinn Afagull, tileinkaðan Sindra.  Heitið er upprunnið í kviðlingi sem langafi drengsins samdi þegar hann kom í heiminn.

Verkið virðist einkum vera kankvís svipmynd af drengnum þótt kannski kinki móðirin ástúðlega kolli undir lok þess.  Þetta fjöruga, nánast strákslega verk hafa Guðrún og Martial ósjaldan leikið fyrir skólabörn frá því það var samið árið 2001.

(Atli Ingólfsson)

 


Snorri Sigfús Birgisson (1954):

 

Partíta fyrir einleiksflautu 12mn.

 

Þetta verk var samið árið 1997 og endurskoðað lítillega árið 2003.  Það er tileinkað Martial Nardeau sem frumflutti það 25.apríl 1998 í Norræna Húsinu. Verkið er í 10 köflum sem leiknir eru án hlés. Nafn Martials myndar 6 tóna hljóm og verkið er að miklu leyti byggt á þessum hljómi (M(i)-a-r(e)-ti-(f)a-l(a bémol)).
 

Hlið við hlið (1995/’97/2002) 13mn. fyrir tvær flautur.

 

Fyrsti kaflinn hverfist um sjálfan sig; í kafla tvö skiptist á efni af tvennum toga, annars vegar eru flauturnar algjörlega samstíga en hins vegar elta þær hvor aðra; í þriðja kafla fara flauturnar ólíkar leiðir að sama markmiði og í fjórða og síðasta kaflanum eru flauturnar sammála bæði um markmið og leiðir.

 

  

Kjartan Ólafsson (1958): 

 

Calculus fyrir einleiksflautu (1990) 12mn. 

 

Calculus 2 (2009) 10mn. fyrir flautu og píanó (frumflutningur).

 

 

 Klaus Ager (1946):

 

Die zweite Elegie fyrir einleiksflautu (2001)  9mn.

 

Einleiksverkið Die zweite Elegie op. 74. 1 var samið árið 2001 fyrir flautu og altflautu. Af verkinu er líka til útgáfa fyrir sögumann, flautu og rafhljóð op.74.2

 

 

 Flytjendur / The Performers


Martial Nardeau hóf að læra á flautu níu ára gamall hjá Raymond Pauchet í Tónlistarskólanum í Boulogne sur Mer í Frakklandi og útskrifaðist þaðan sextán ára gamall. Á næstu árum hélt hann áfram námi í París hjá Fernand Caratgé og Roger Bourdin og vann til margra verðlauna og viðurkenninga. Á árunum 1979 til 1982 var hann fastráðinn við Lamoureux-sinfóníuhljómsveitina í París ásamt því að vera flautukennari við Ríkistónlistarskólana í Limoges og Amiens en kom jafnframt víða fram sem einleikari. Árið 1982 settist Martial að á Íslandi. Hann hefur æ síðan starfað í Kammersveit Reykjavíkur og Hljómsveit Íslensku óperunnar, Kammersveit Hallgrímskirkju og leikið með fjölmörgum tónlistarhópum.  Hann er fastráðinn við Sinfóníuhljómsveit  Íslands og starfar sem kennari við Listaháskóla Íslands. Martial hefur einnig ferðast mikið sem tónlistarmaður og komið fram í um það bil 20 löndum. Hann hefur lagt stund á barokkflautuleik og þar notið leiðsagnar Pierre Séchet. Í rúmlega áratug stóð hann fyrir reglulegum tónleikum á upprunaleg hljóðfæri í Kópavogi.

 

Martial Nardeau began to study the flute at the age of nine with Raymond Pauchet at the Conservatory in Boulogne sur Mer. He continued his studies with Fernand Caratgé and Roger Bourdin in Paris, winning many prizes and awards. From 1979 to 1982, he was a permanent member of the Lamoureux Symphony Orchestra in Paris and taught the flute at the Conservatories in Limoges and Amiens, as well as making many solo appearances. Martial has lived in Iceland since 1982. He is a  flautist in The Icelandic Symphony Orchestra, Reykjavik Chamber Orchestra and The Icelandic Opera Orchestra and teaches at the Iceland Academy of the Arts.  Martial has also studied the baroque flute with Pierre Séchet. For more than a decade, he organised a series of baroque concerts in Kópavogur. Martial travels widely as a musician and has appeared as a soloist and chamber musician in more than 20 countries.

 

 Guðrún Sigríður Birgisdóttir stundaði nám í flautuleik við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Manuelu Wiesler og lærði svo áfram við Musikkhögskolen i Oslo og í Frakklandi.  Að loknum prófum frá Ecole Normale de Musique í París (m.a. Diplôme d´Exécution í flautuleik og Diplôme Supérieur de Concertiste í kammermúsík) stundaði hún framhaldsnám hjá Raymond Guiot og Pierre-Yves Artaud í þrjú ár með styrk frá franska ríkinu.  Hún hóf störf á Íslandi árið 1982 sem sjálfstæður flautuleikari og kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónlistarskóla Kópavogs.  Hún er nú deildarstjóri við Tónlistarskóla Kópavogs og hefur útskrifað þaðan marga nemendur. Guðrún hóf ung störf sem flautuleikari í Hljómsveit Íslensku óperunnar og leikur þar enn.  Hún hefur haldið fjölda einleiks- og kammertónleika, hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp og gefið út nokkra geisladiska en einnig leikið á barokkflautu og frumflutt íslensk flautuverk, sem mörg hafa verið samin fyrir hennar tilstuðlan. Hún hefur fengið starfsstyrki sem Bæjarlistamaður Kópavogs og starfslaun íslenska ríkisins, síðast árið 2006.

 

Guðrún Birgisdóttir studied the flute with Manuela Wiesler at the Reykjavik College of Music and later with Per Öien at the The Norwegian Academy of Music in Oslo. She continued her studies with Fernand Caratgé at the Ecole Normale de Musique in Paris. She graduated with a Concert diploma and was then awarded a French government grant to study further with Raymond Guiot and Pierre-Yves Artaud. Later she also studied the baroque flute with Pierre Séchet. She has been a freelance musician in Iceland since 1982, playing in various groups and orchestras such as  the Icelandic Opera Orchestra. She has released several CD, and premiered many pieces which have been especially written for her. She is currently head of The Department of Wind Instruments at the Kopavogur School of Music where she has been teaching for many years. Guðrún performs with Martial Nardeau a wide range of music for two flutes and regurlarly plays recitals with pianist Peter Máté, guitarists Pétur Jónason and Kristinn Árnason as well as harpist Elisabet Waage, to name but a few. Guðrún has received many honours for her musical activities in Iceland.

 


Tónskáldin / The composers

 

Mist Þorkelsdóttir stundaði nám í píanó- og semballeik við Tónlistarskólann í Reykjavík.  Að loknu stúdentsprófi fór hún í nám til Minnesota, lærði tónsmíðar undir handleiðslu Russel G. Harris við Hamline University, St. Paul, Minnesota, og tók þaðan BA próf í tónlist 1982. Hún hélt áfram námi hjá Lejaren Hiller og Morton Feldman við State University of New York í Buffalo veturinn 1983.  Eftir nokkurra ára kennslu, og þátttöku í stjórnum Musica Nova og Ung Nordisk Musik fór hún í framhaldsnám til Boston University með Theodor Antoniou og Lukas Foss sem aðalkennara, og lauk Masters prófi þaðan 1993. Mist hefur fengið pantanir og styrki frá flytjendum og samtökum á Íslandi, Norðurlöndum og í Bandaríkjunum.  Nokkrir tugir verka eftir hana eru á skrá hjá Íslenskri Tónverkamiðstöð, frá einleiksverkum upp í hljómsveitarverk.  Sem stendur er hún í stjórn Tónskáldafélags Íslands og er deildarforseti tónlistardeildar Listaháskóla Íslands.

 

Mist Þorkelsdottir studied piano and harpsichord at the Reykjavik College of Music.    She continued her studies in the United States, first at Hamline University, St. Paul, Minnesota, then composition with Lejaren Hiller and Morton Feldman at the State University of New York at Buffalo and at Boston University with Theodor Antoniou and Lukas Foss. After completing her studies, and having three children, Mist embraced Icelandic musical life, teaching and being active in various artistic organizations as well as composing.  She has received commissions and grants from performers and organizations in America and Europe.  Currently, Mist sits on the board of the Society of Icelandic Composers and is Dean of the Music Department at the Icelandic Academy of the Arts.


Snorri Sigfús Birgisson er fæddur 1954. Hann stundaði píanónám fyrst hjá Gunnari Sigurgeirssyni en innritaðist síðan í Tónlistarskólann í Reykjavík. Þar lærði hann á píanó hjá Hermínu S. Kristjánsson, Jóni Nordal og Árna Kristjánssyni en lagði einnig stund á tónsmíðar hjá Þorkeli Sigurbjörnssyni. Hann lauk einleikaraprófi árið 1974. Veturinn 1974-1975 stundaði hann framhaldsnám í píanóleik hjá Barry Snyder við Eastman School of Music í Bandaríkjunum, 1975-76 tónsmíðanám í Osló hjá Finn Mortensen (enn fremur nám í raftónlist hjá Lasse Thoresen og "sonology" hjá Thoresen og Olav Anton Thommessen) og árin 1976-1978 lærði hann tónsmíðar hjá Ton de Leeuw í Amsterdam. Snorri hefur starfað í Reykjavík sem tónskáld, píanóleikari, tónlistarkennari og stjórnandi síðan hann kom heim frá námi (1980). Hann hefur samið einleiksverk, kammertónlist, raftónlist, kórtónlist og sinfónísk verk. Hann er félagi í Caput-hópnum.


The composer and pianist Snorri Sigfús Birgisson commenced his musical studies with Gunnar Sigurgeirsson after which he went on to study at the Reykjavík College of Music where his teachers were Hermína Kristjánsson, Jón Nordal, Árni Kristjánsson (piano), and Þorkell Sigurbjörnsson (composition). He studied piano with Barry Snyder at the Eastman School of Music, U.S.A. (1974-1975) and composition with Finn Mortensen in Norway where he also studied electronic music with Lasse Thoresen and sonology with Thoresen and Olav Anton Thommessen (1975-76). Snorri moved to Amsterdam in 1976 where he studied composition for two years with Ton de Leeuw. Since 1980 he has been living in Reykjavík, where he is active as a musician and music teacher. He has composed solo works, chamber works, symphonic pieces and choral music. He is a member of Caput the Icelandic ensemble for new music.

 

Klaus Ager fæddist árið 1946 í Salzburg og nam tónsmíðar, hljómsveitarstjórn og tónfræðigreinar við Mozarteum og háskólann þar í borg og hjá Olivier Messiaen og Pierre Schaeffer við Tónlistarháskólann í París.  Hann var listrænn stjórnandi Österreichische Ensemble für Neue Musik á árunum 1975-1986 og kom þá fram á mörgum tónleikum heima og heiman.  Frá árinu 1977 er hann listrænn stjórnandi nútímatónlistarhátíðarinnar ASPEKTE í Salzburg.  Klaus Ager er formaður tónskáldafélagsins í Austurríki. Hann var prófessor  í tónsmíðum við Bergenz tónlistarskólann í Austurríki og tónbókemnntum við Mozarteum í Salzburg frá árinu 1978.  Hann var rektor Mozarteum á árunum 1995-2000.  Á verkaskrá hans er hljómsveitartónlist, kórtónlist, kammertónlist og raf- og tölvutónlist. Hann hefur verið gestatónskáld við við marga bandaríska háskóla á liðnum árum.  Verk hans hafa verið flutt í Evrópu, Bandaríkjunum, Suður-Ameríku, Japan, Kóreu og víðar.

 

Klaus Ager was born 1946 in Salzburg, studied music (composition, orchestra conducting and musicology) at the "Mozarteum" Academy in Salzburg, the University of Salzburg, and in Paris at the "Conservatoire National" with O. Messiaen and P. Schaeffer. Artistic Director of the "Austrian New Music Ensemble" from 1975 - 1986 and extensive concert activity at home and abroad. Since 1977 Artistic Director of the New Music Festival ASPEKTE Salzburg. Since May 2004 President of the Austrian Composers’ Association.  Professor for Composition at the Conservatory of Bregenz from 1980 - 1986 and professor for music analysis at the "Mozarteum" Academy for music in Salzburg since 1978. From October 1995 to Sept. 2000 President of this school. The list of his compositions includes orchestra music, choral works and chamber music as well as electronic and computer music. Guest Composer at several American University computer music centres in recent years. Performances of his music in Europe an abroad, lectures in Europe, the US, Latin America, Korea, Japan etc.

 

(c) Icelandic Society of Composers 2008 - contact: kjol@lhi.is / hallivs@internet.is

UM MMD


slóðir / links:
Snorri Sigfús Birgisson
Kjartan Ólafsson
Klaus Ager (MIC Au)http://notendur.centrum.is/~ssb/http://www.listir.is/calmus/Kjartan.net/http://www.mica.at/composerdb/details/Composer/composer17623EN.asp?cat=composer&letter=shapeimage_11_link_0shapeimage_11_link_1shapeimage_11_link_2
UM MMDUmMMD09.html
FLYTJENDURFlytjendur09.html
TÓNSKÁLDTonskald09.html
TónleikastaðirStadir09.html
MIÐASALAMidasala09.html