SUNNUDAGUR 8.Febrúar 2009
Sunday February 8th
17.00 @ Hafnarborg
SUNNUDAGUR 8.Febrúar 2009
Sunday February 8th
17.00 @ Hafnarborg
NORÐURLJÓS OG SUNNANVINDUR
RANNVEIG FRÍÐA BRAGADÓTTIR, mezzósópran
JULIA TINHOF, píanó
EFNISSKRÁ / PROGRAM:
Sigfús Einarsson: Draumalandið
Franz Mixa: 5 sönglög úr Des Knaben Wunderhorn
•Morgenlied
•Hab Holzäpfel g´haspelt
•Die Magd an der Wiege
•Cupido, die Fledermaus
•Vergiss mein nicht
Íslenskt þjóðlag: Undir bláum sólarsali
Íslenskt þjóðlag: Litlu börnin leika sér
Helmut Neumann: Ljóðaflokkurinn Suchen und finden –op. 113 við ljóð Gustaf Adolf Neumanns
•Erinnerung
•Hirtenlied
•Wind
HLÉ / INTERMISSION
Jón Ásgeirsson: Maístjarnan
Viktor Urbancic: Elisabeth – Þrjú sönglög op. 8 við texta byggða á ljóðum eftir Hermann Hesse
•Wie eine Wolke Licht am hohen Himmel steht
•Ich soll dir erzählen
•Es war noch Zeit
Viktor Urbancic: Fäden
Jórunn Viðar: Karl sat undir kletti
Jón Þórarinsson: Fuglinn í fjörunni
Páll Pampichler Pálsson: Erotískir söngvar við ljóð Wilhelm Buschs
•Röschen
•Der Geist
•Scheu und treu
Um efnisskrána Norðurljós og sunnanvindur:
“Þróun tónlistar og tónlistarflutnings á Íslandi sem í dag er á alþjóðamælikvarða, gerist í afar stórum stökkum á tuttugustu öld. Þar kemur fjöldi erlendir tónlistarmenn við sögu, þar af margir austurrískir. Þegar þúsund ára afmæli Alþingis stóð fyrir dyrum í lok 20. áratugsins og hátíðarhöld með miklum tónlistarflutningi var í plönun, var ákveðið að fela undirbúninginn í hendur erlends tónlistarmanns. Sigfús Einarsson fór í þeim tilgangi að ráða rétta manninn til Vínarborgar og kynntist þar tónskáldinu Franz Lehár. Lehár mælti með hinum unga stjórnanda Franz Mixa, sem fór með til Ísland og starfaði þar næsta áratuginn.
Árið 2004 vann ég að stóru verkefni um tónskáldið Pál Pampichler Pálsson og las af því tilefni mér til í íslenskri tónlistarsögu. Þar rakst ég mjög oft á nöfn Franz Mixa og Viktor Urbancic. Nöfn þessi voru mér auðvitað ekki framandi.1997 flutti ég fyrst nokkur lög eftir Urnacic ásamt Jónasi Ingimundarsyni og í tilefni 100 ára áfmælis Mixa árið 2002 söng ég lög eftir hann á tónleikum í Graz. Það sem fyllti mig undrun var hversu mikil áhrif þessir tónlistarmenn höfðu á uppbyggingu tónlistarlífs og tónmenntunar á Íslandi, áhrif sem í gegnum þá góðu tónlistar menn sem enn starfa á Íslandi, ná fram til dagsins í dag. Ætla má að heil kynslóð tónskálda hafi byrjað sitt nám hjá Viktor Urbanic. Bæði Mixa og Urbancic voru óvenjulega hámenntaðir á sviði tónlistar og unnu á Íslandi starf frumherja við oft knappar og erfiðar aðstæður.
Páll P. Pálsson kom seinna til landsins ásamt fleiri góðum tónlistarmönnum sem ekki verður getið hér. Pál Pampichler Pálsson starfaði í yfir þrjátíu ár stöðugt sem stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og er eitt okkar bestu tónskálda.
Á fleiri sviðum hafa tengsl Austurríkis og Íslands verið sterk. Tónlistarháskólinn í Vín var einn af mikilvægustu menntastofnunum sem stúdentar frá Íslandi sóttu nám til. Hér starfaði Svanhvít Egisldóttir í áratugi við einsöngvaradeild skólans. Mörgum hefur austurríska tónskáldið Helmut Neumann verið ómetanlegur stuðningur í framandi landi. Mér veitti hann einnig mikilvæga hjálp við vinnslu verkefnis míns og í því samhengi varð efnisskráin Norðurljós og sunnanvindur til og fyrst flutt í Vínarborg veturinn 2005. Efnisskráin er samansett af sönglögum Franz Mixa og Viktor Urbancic, tveimur nýjum lagaflokkum eftir Helmut Neumann og Pál P. Pálsson, rammað inn og tengt saman af íslenskum þjóðlögum og íslenskum sönglögum nokkurra úrvals íslenskra tónskálda. Frá upphafi var hugmynd að flytja prógrammið á Íslandi og er það mér sem íslenskri söngkonu, menntuð og búsett í Austurríki, mikil ánægja að gera það með hjálp austurríska píanóleikarans Júliu Tinhof!” -RFB
Um flytjendur / About the Performers:
Rannveig Fríða Bragadóttir Messósópran hlaut sína fyrstu söngkennslu hjá Má Magnússyni í Söngskólanum í Reykjavík. Að loknu stúdenstsprófi hélt hún til náms við Tónlistarháskólan í Vínarborg og stundað nám þar m.a. hjá Helenu Karusso og Kurt Equiluz. Rannveig lauk lokaprófi í einsöng með láði og verðlaunum austurríska menntamálaráðuneytisins fyrir afburða námsárangur.
Rannveig var fyrst ráðin við Ríkisóperunnar í Vín frá 1987 - 1991. Hún hefur síðar á ferli sínum árum starfað við fjölda óperuhúsa sem fastráðin - eða gestasöngvari, s.s. Óperunan í Frankfurt, Konunglega Óperuhúsið í Brüssel, Leikhúsin í Wiesbaden, Basel, Mannheim, Klagenfurt og Graz. Hún hefur verið gestur á ýmsum tónlistarhátíðum í Evrópu m.a. listahátíðinni frægu í Salzburg, einnig hefur hún haldið einsöngstónleika víða um lönd og komið fram í útvarpi og sjónvarpi.
Á Íslandi hefur starfsvið Rannveigar verið umfangsmikið - hún er að jöfnu kunn sem óperu- óratoríu- og ljóðasöngkona. Hún hefur starfað með helstu tónlistarstofnunum landsins og mörgum okkar þekktustu tónlistarmanna. Árið 2004 frumflutti hún á Íslandi söngflokkin “Die Weise vom Liebe und Tod des Cornets Christoph Rilke” eftir Frank Martin ásamt Kammersveit Reykjavíkur undir stjórn Gerrit Schuil. Meðal verkefna Rannveigar árið 2008 er flutningur á Rückert Lögum Mahlers með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Rumon Gamba og Messosópran hlutverk í Requiem eftir Verdi ásamt Vox Humana. Hún hefur sungið inn á fjölda geisladiska, m.a. La Traviata – Naxos 1991; Die Frau Ohne Schatten - Decca 1992; Salome – Decca 1995; “Kristallar” ásamt Kammersveit Reykjavíkur 1992 og “Ljáðu mér vængi” ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands 1996. Sólódiskar hennar, “Schubert Sönglög” og “Sönglög eftir Schubert, Schumann, Wolf og Grieg” sem hún hljóðritaði með Gerrit Schuil, voru tilnefndir til íslenskra tónlistarverðlauna 1998 og 2002.
Árið 2000 sæmdi Forseti Íslands Rannveigu Fríðu riddarakrossi hinnar Íslensku Fálkaorðu.
Síðan í otóber 2008 fetar Rannveig í fótspor Svanhvítar Egilsdóttur og gegnir stöðu við einsöngvaradeild Tónlistarháskólans í Vínarborg.
Rannveig Braga started her studies at the Reykjavík College of Singing. She continued at the Academy for Music in Vienna and graduated with a special distinction of the Austrian ministry of education and arts. In Vienna she was trained by prof. Helene Karusso and prof. Kmsg. Kurt Equiluz. Her first engagement was at the Vienna State Opera where she was engaged as a permanent singer from 1987 – 1991. Since then she has participated in performances in several other opera houses f. e. the Opera Frankfurt, Theatre Royal de la Monnaie, the theaters in Wiesbaden, Mannheim, Basel, Klagenfurt and Graz, as well as taking part in the Easter – and summer festivals in Salzburg and made several radio and television recordings. In Iceland Rannveig has taken part at opera performances at the National Theatre as well as at the Icelandic Opera. She has often sung with the Icelandic Symphony orchestra and given many song recitals. In Mars 2004 she performed with The Reykjavík Chamber orchestra under the direction of Gerrit Schuil the Song cycle “Die Weise vom Liebe und Tod des Cornett Christoph Rilke” from Frank Martin and Rainer Maria Rilke, which was an Icelandic premiere.
2008 she performed the Rückert songs from Mahler with the Icelandic symphonic orchestra and Rumon Gamba and sang the mezzo-soprano part in Requiem by Verdi with Vox Academica.
She has participated in many recordings: La Traviata – Naxos 1991; Die Frau Ohne Schatten - Decca 1992; Salome – Decca 1995; “Kristallar” with The Reykjavík Chamberorchestra 1992 and “Ljáðu mér vængi” with the Icelandic Symphony Orchestra 1996. Her Solo CD – Schubert Songs and Songs from Schubert, Schumann , Wolf and Grieg - where nominated for the Icelandic Music Award 1998 and 2002.
In 2000 the President of Iceland awarded Rannveig Braga with the Knight´s Cross of the Falcon.
Since October 2008 Rannveig is a professor for Singing at the University of Music in Vienna.
Julia Tinhof er fædd og uppalin í Vínarborg. Hún stundaði nám við píanókennaradeild tónlistarháskólans í Vín og að því loknu, hélt hún til frekara náms í einleik hjá hinum þekkta Lazar Bergmann við Franz Liszt tónlistarháskólan í Weimar. Á námsferlinum tók hún einnig þátt í meistaranámskeiðum hjá mörgum heimsþekktum kennurum, s.s. Leonard Hokanson og Kurt Widmer.
Starfsvettvangur Julíu Tinhof er mjög fjölbreyttur og spannar bæði einleik og undirleik með söngvurum og hljóðfæraleikurum, kammermúsík, sem og stjórnun tónlistarflutnings í leikritum, m.a. við leikhúsin Volkstheater í Vín, Spielraum og Bisamberger Schlossfestspiele. Hún starfar sem undirleikari með Sólrúnu Bragadóttur á meistaranámskeiðum á eyjunni Mön í Danmörk og kemur reglulega fram með Rannveigu Fríðu Bragadóttur á tónleikum í Austurríki. Hún hefur gert margar hljóðritanir þ.á m. geisladiskinn Exils með sópransöngkonunni Judith Kopecky (Daphne Music 2006) en þar er að finna lög tónskálda sem flúðu Austurríki undir stjórn nasista. Júlia Tinhof starfar einnig reglulega með tenórnum Heinrich Schopf hjá Vienna Opera company (Listrænn stjórnandi Prof. Dr. Theodore Coresi) og kennir við barnakórskólan Nano í Vín (Listrænn stjórnandi og stofnandi Sibyl Urbancic)
Síðan 2005 hefur hún starfað sem undirleikari við tónlistarháskólan í Vínarborg (Universtität für Musik und darstellende Kunst in Wien).
Julia Tinhof was born in Vienna: “Liedbegleiterin” and piano accompanist at the Music University in Vienna. She has studied with Maestro Lazar Berman at the “Franz Liszt Hochschule” in Weimar and has trained in master classes for “Liedgesang” with Leonard Hokanson.
Musical director of several theater productions at the “Volkstheater Wien”, Theater “Spielraum” and “Bisamberger Schlossfestspiele”.She also acted as a pianist in Paulus Mankers “Alma” in Purkersdorf near Vienna.
She is working together with the Soprano Sola Braga in the master-classes for singing at the
Island Mön in Denmark. She is regularly giving concerts in contemporary music together with the Mezzosoprano Rannveig Braga . She is the personal coach of the tenor Heinrich Schopf at the Vienna Opera company under the lead of Prof. Theodore Coresi.
Her personal interest is the exploration of the work of exiled composers;at last CD Production “EXILES” with the Soprano Judith Kopecky.
(c) Icelandic Society of Composers 2009 - contact: kjol@lhi.is / hallivs@internet.is
