MÁNUDAGUR 9.Febrúar 2009
Monday February 9th
12.15 @ Norræna Húsið / Nordic House
MÁNUDAGUR 9.Febrúar 2009
Monday February 9th
12.15 @ Norræna Húsið / Nordic House
(c) Icelandic Society of Composers 2009 - contact: kjol@lhi.is / hallivs@internet.is
ANNA GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR, píanó
SNORRI SIGFÚS BIRGISSON, píanó
EFNISSKRÁ / PROGRAM:
Snorri Sigfús Birgisson: Fjögur lög úr Norður-Múlasýslu (fjórhent / frumfl.)
1. Gekk ég fram á Kvíslarskarð
2. Þú mátt hafa vit í vösum
3. Um Ísalönd aukast nú vandræðin
4. Fönnin úr hlíðinni fór
Þuríður Jónsdóttir: Hermétique (AGG-sólo / frumfl. á Íslandi)
Haukur Tómasson: Glacial Pace (SSB-sóló)
Frescobaldi / Kurtág: Corrente III (fjórhent).
Frescobaldi / Kurtág: Corrente IV (fjórhent).
Purcell / Kurtág: Fantasia upon One Note (fjórhent).
Bach / Kurtág: Gottes Zeit ist die aller beste Zeit (fjórhent).
Fjögur lög úr Norður-Múlasýslu (2008) eru tileinkuð Önnu Guðnýju sem á ættir að rekja í Borgarfjörð eystri. Lögin er að finna í “Munnlegu geymdinni” (http://ismus.musik.is).
S.S.B.
Four songs from Norður-Múlasýsla (2008) are dedicated to Anna Guðný. The songs are preserved in the so-called ‘oral history’ (http://ismus.musik.is)
Þuríður Jónsdóttir lærði tónsmíðar hjá Snorra S. Birgissyni og Guðmundi Hafsteinssyni við Tónlistarskólann í Reykjavík og stundaði síðan framhaldsnám við Konservatórið í Bologna á Ítalíu. Hún hefur samið fjölda verka sem leikin hafa verið víða um heim og var tilnefnd til Tónskáldaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2006.
Thuríður Jónsdóttir studied composition with Snorri S. Birgisson and Guðmundur Hafsteinsson at the Reykjavik Music College, and post graduate studies at the Bologna Conservatory in Italy. She has written a number of pieces which have been performed around the world. Thuríður was nominated for the Nordic Council Music Prize in 2006.
Hermétique var pantað af Franska ríkisútvarpinu fyrir Présences hátíðina árið 2004. Verkið var eitt af sjö örverkum fyrir píanó sem samin voru af jafn mörgum tónskáldum og leikin sem ein heild undir yfirskriftinni Les 7 défauts capitaux eða höfuðsyndirnar sjö. Það var Dimitri Vassilakis sem frumflutti verkið. Hermetique var fyrsti kafli verksins og fyrsta dauðasyndin. Hinar sex voru: Antipathique, Rétrograde, Sériel, Ethylique, Trajectoires incandescentes og Tétradactyle.
Þ.J.
Hermètique was commissioned by the French National Radio for the Présences festival in 2004. The piece is one of seven micro-pieces for piano, written by equal number of composers and performed as one complete composition with the caption Les 7 défauts or the Seven Deadly Sins. It was premiered by pianist Dimitri Vassilakis. Hermètique was the first chapter of the piece and therefore the first Deadly Sin. The other six were: Antipathique, Rétrograde, Sériel, Ethylique, Trajectoires incandescentes and Tétradactyle.
Glacial Pace var pantað af Snorra Sigfúsi Birgissyni með stuðningi Musica Nova. Snorri frumflutti það í Norræna húsinu í nóvember síðastliðnum. Verkið er allt fremur hægferðugt og róast bara enn meir í lokin ef eitthvað er.
H.T.
Glacial Pace was commissioned by Snorri Sigfús Birgisson with support of Musica Nova. It was premiered by Birgisson in the Nordic House last November. The piece is altogether lingering and only gets slower towards the end.
György Kurtág (f. 1926) er ungverskt tónskáld. Kona hans, Márta, er píanóleikari og þau hjónin leika oft saman 4-hent á píanó m.a. útsetningar eftir György.
György Kurtág (born 1926) is a hungarian composer. His wife, Márta, is a pianist and they often perform together 4-hand piano, including arrangements by György.
Um flytjendur / About the Performers:
Anna Guðný Guðmundsdóttir er fædd í Reykjavík. Hún brautskráðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1979 og stundaði Post Graduate-nám við Guildhall School of Music and Drama í London með sérstaka áherslu á kammertónlist og meðleik með söng. Hún hefur starfað á Íslandi í 25 ár við margvísleg störf píanistans, aðallega í samleik ýmiss konar en einnig í einleikshlutverki. Hún var ráðin til Sinfóníuhljómsveitar Íslands haustið 2005. Hún er tilnefnd til Íslensku tónlistar-verðlaunanna 2009 sem flytjandi ársins fyrir flutning sinn á verki Olivier Messiaen: "Tuttugu tillit tilJesúbarnsins" haustið 2008.
Anna Gudny Gudmundsdottir completed her soloist´s examination at Reykjavík College of Music in 1979. She continued her studies in London at the Guildhall School of Music, where she received her Post Graduate diploma with a focus on chamber music and lieder accompaniment. Anna Gudny has appeared as a soloist and accompanist on numerous occations over the last 25 years. Her performances can be heard on numerous CDs. She received a nomination for "Performer of the year" in 2004 at the Icelandic Music Price, and again in 2009 for her performance of Olivier Messiaen’s “Twenty gazes on the infant Jesus”. Anna Gudny Gudmundsdottir taught at the Iceland Academy of the Arts´ music department from its foundation in 2001 until 2005 when she was appointed pianist of the Iceland Symphony Orhcestra.
Snorri Sigfús Birgisson er fæddur 1954. Hann stundaði píanónám fyrst hjá Gunnari Sigurgeirssyni en innritaðist síðan í Tónlistarskólann í Reykjavík. Þar lærði hann á píanó hjá Hermínu S. Kristjánsson, Jóni Nordal og Árna Kristjánssyni en lagði einnig stund á tónsmíðar hjá Þorkeli Sigurbjörnssyni. Hann lauk einleikaraprófi 1974.
1974-1975 stundaði hann framhaldsnám í píanóleik hjá Barry Snyder við Eastman School of Music í Bandaríkjunum, 1975-76 tónsmíðanám í Osló hjá Finn Mortensen og 1976-1978 lærði hann tónsmíðar hjá Ton de Leeuw í Amsterdam. Snorri hefur starfað í Reykjavík sem tónskáld, píanóleikari, tónlistarkennari og stjórnandi síðan hann kom heim frá námi (1980). Hann er félagi í Caput-hópnum.
The composer and pianist Snorri Sigfús Birgisson commenced his musical studies with Gunnar Sigurgeirsson after which he went on to study at the Reykjavík College of Music where his teachers were Hermína Kristjánsson, Jón Nordal, Árni Kristjánsson (piano), and Þorkell Sigurbjörnsson (composition). He studied piano with Barry Snyder at the Eastman School of Music, U.S.A. (1974-1975) and composition with Finn Mortensen in Norway where he also studied electronic music with Lasse Thoresen and sonology with Thoresen and Olav Anton Thommessen (1975-76). Snorri moved to Amsterdam in 1976 where he studied composition for two years with Ton de Leeuw. Since 1980 he has been living in Reykjavík, where he is active as a musician and music teacher. He has composed solo works, chamber works, symphonic pieces and choral music. He is a member of Caput the Icelandic ensemble for new music.



