MÁNUDAGUR 9.Febrúar 2009
Monday February 9th
20.00 @ SALURINN, Kópavogi
MÁNUDAGUR 9.Febrúar 2009
Monday February 9th
20.00 @ SALURINN, Kópavogi
RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR
HILMAR ÖRN HILMARSSON
Flutt verða nýjar og eldri tónsmíðar eftir Hilmar og Ragnhildi.
New music from Hilmar Örn & Ragnhildur.
RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR
EFNISSKRÁ / PROGRAM:
C-Iss og Gullfoss (2009)
Hávaðinn í sólinni (2008) texti e. Kristínu Ómarsdóttur / Lyrics by Kristín Ómarsdóttir
Túnfífill (2006)
Flytjendur / Performers:
Pétur Grétarsson, slagverk / percussion
Borgar Magnason, kontrabassi / contrabass
Ásgerður Júníusdóttir, söngur / vocals
Kjartan Óskarsson, klarinett / clarinet
Ívar Ragnarsson, hljóðleikur / sound production
R.Gísladóttir, hljóðmyndir / soundscapes
HILMAR ÖRN HILMARSSON
EFNISSKRÁ / PROGRAM:
Tilkynnt síðar / Coming soon
Ragnhildur Gísladóttir lauk prófi í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands vorið 2008. Hún hefur starfað sem tónlistarmaður um árabil og stofnaði fyrstu íslensku kvennarokkhljómsveitina, Grýlurnar, árið 1981, lék í hljómsveitinni Stuðmönnum frá árinu 1984-2005 og er höfundur efnis á fjölda hljómdiska beggja hljómsveita. Meðal tónsmíða á öðrum hljómdiskum sem hún hefur átt þátt í og samið má nefna, Rombigy (1991), Ragga & the Jack Magic Orchestra (1997), Human Body Orchestra (1998), Baby (2000) og Bergmál (2005). Auk þess hefur Ragnhildur samið tónlist við kvikmyndina Veðramót (2007) eftir Guðnýju Halldórsdóttur og stuttmyndina Naglinn (2008) eftir Benedikt Erlingsson. Á árunum 2001-2006 vann Ragnhildur með japanska sanukite stein-slagverksleikaranum Stomu Yamash´ta við upptökur og flutning á tónlist þeirra beggja í Japan. Stomu Yamash´ta lék með Ragnhildi á Bergmálsdisknum og var það verk flutt á Listahátíð 2005 í Reykjavík og á heimssýningunni Expo 2005 í Japan. Árið 2008 samdi Ragnhildur tónlist við leikritið Sumarljós eftir Jón Kalman.
Ragnhildur Gísladóttir graduated in composition from the Iceland Academy of the Arts in the spring of 2008. She has been a professional musician for some time; she founded the first Icelandic female rockgroup, Grýlurnar, in the year 1981, performed with the group Studmenn in the period 1984-2005 and wrote music on a number of CDs with both groups. Among other CDs that have been published with material written and composed by Ragnhildur Gísladóttir are Rombigy (1991), Ragga & the Jack Magic Orchestra (1997), Human Body Orchestra (1998), Baby (2000) and Bergmál (2005). Ragnhildur Gísladóttir has also composed music for the film Vedramót (2007) by Gudný Halldórsdóttir and the short film Naglinn (2008) by Benedikt Erlingsson. In the years 2001-2006 Ragnhildur Gísladóttir collaborated with the Japanese sanukite stone-percussionist, Stomu Yamash´ta in Japan where they recorded and performed their music. Stomu Yamash´ta performed with Ragnhildur Gísladóttir on her Bergmál CD which they also performed at the Reykajvík Art Festival in 2005 and at the World´s Fair Expo 2005 in Japan. In the year 2008, Ragnhildur composed music for the play Sumarljós by Jón Kalman.
C-Iss og Gullfoss (2009)
Þetta verk er skrifað fyrir bassaklarinett, kontrabassa, vibrafón, bassatrommu við hljóðmynd sem gerð er úr hljóði Gullfoss, pink noise og hreinum sínusbylgjutónum.
Fyrsti tónn hljóðfæranna (g) er gripinn fyrir ofan fossinn, fyrir ofan höfuð okkar. Með grófri viðkomu þeirra í nokkrum tónum líkama og foss, er ákveðið að enda á svæði hjartans (ca c,c#,d). Þakklæti - ást - þakklæti.
Hávaðinn í sólinni (2008)
Kveikjan að textanum er spurning einnar 5 ára stúlku sem fæddist alveg heyrnalaus: "Hvað heyrist þegar sólin sest?"
Í öðrum kafla verksins er hljóðmyndin söngur Arnolds sem fæddist heyrnalaus. Hann, eins og svo margir heyrnalausir, "hlustar" mikið á tónlist. Þeir skynja tónlist og segjast "hlusta með hjartanu" sem er þeirra orðalag um tilfinningalega nálgun við tónlist. Hvað skynja þeir í tónlistinni? Getum við sem erum með eðlilega heyrn lært að hlusta eins og hinir heyrnalausu? En það er ekki möguleiki fyrir okkur sem heyrum að heyra ekki.
Hávaðinn í sólinni
Kristín Ómarsdóttir
Hvern morgun toga tröllin
sólina upp með ískrandi vír
því gala hanarnir
lestarnar þjóta af stað
allur erillinn felur
hávaðann í sólinni
Þegar ég fæddist einn daginn
var ég lítið undir það búin
gleymdi mér í látunum
gleymdi líka hlustinni
óskilamunur
sem ekki fæst sóttur
hlustunartæki mitt geymist
í maga mömmu fylgist með
hjarta hennar slá
sendir mér viðvörun -titring við naflann
ef eitthvað hendir
eyrun fela sig í naflanum mínum
betur en öll tæki heimsins
þekki ég hjartslátt mömmu
það fellur að er þreytt tröllin
missa takið og sólin dettur
í sjóinn sem felur hana
niðri í djúpunum
á morgun toga þau
sólina aftur upp
saltið í sjónum eru tár sólarinnar
þegar hún syngur á nóttunni
með munninn fullan af sjó
Túnfífill (2006)
Hljóðmyndin er blástur í leggi íslenskra túnfífla af ýmsum stærðum.
Leikið er á þá eins og tvíblöðunga.
Fluga
Hann Juj (768-824)
Sko, lítil fluga ljót og svört!
hún leitar sér að birtu og yl
og langar kanski að lifa um stund -
Þú leyfir henni að vera til,
því hún fær aðeins andartak
að eiga líf sitt, hún er nú
að flögra hér, en fýkur burt
með fyrsta haustblæ, eins og þú.
(c) Icelandic Society of Composers 2008 - contact: kjol@lhi.is / hallivs@internet.is