ÞRIÐJUDAGUR 10.Febrúar 2009
Tuesday February 10th
12.15 @ Hafnarborg
FÖSTUDAGUR 13.Febrúar 2009
Friday February 13th
20.00 @ Laugarborg, Eyjafjarðarsveit
ÞRIÐJUDAGUR 10.Febrúar 2009
Tuesday February 10th
12.15 @ Hafnarborg
FÖSTUDAGUR 13.Febrúar 2009
Friday February 13th
20.00 @ Laugarborg, Eyjafjarðarsveit
(c) Icelandic Society of Composers 2008 - contact: kjol@lhi.is / hallivs@internet.is
EMIL FRIÐFINNSSON, horn
ÞÓRARINN STEFÁNSSON, píanó
EFNISSKRÁ / PROGRAM:
Leifur Þórarinsson:
Jólamars
Afmælikveðja
Jólaglenna
Jónas Tómasson: Sónata XVIII fyrir horn
Herbert H. Ágústsson: Andante
Óliver Kentish: Three Sketches
Tryggvi M. Baldvinsson: Fantasiestück für Horn und Klavier

Um flytjendur / About the performers:
Emil Friðfinnsson stundaði nám við Tónlistarskólann á Akureyri og síðan við Tónlistarskólann í Reykjavík þaðan sem hann lauk einleikaraprófi undir handleiðslu Joseph Ognibene. Framhaldsnám stundaði Emil við Folkwang -Hochschule Essen hjá prófessor Hermann Baumann og lauk prófi þaðan 1991.
Eftir að hafa starfað hjá ýmsum hljómsveitum í Þýskalandi í nokkur ár sneri Emil heim og hefur frá 1994 verið hornleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, undanfarin ár sem uppfærslumaður. Auk þess hefur Emil leikið með Kammersveit Reykjavíkur, Caput-hópnum frá upphafi, Kvintett Corretto, Diddú og drengjunum og fleiri hópum.
Þórarinn Stefánsson hóf ungur píanónám við Tónlistarskólann á Akureyri en lauk kennara- og einleikararprófi frá Tólistarskólanum í Reykjavík vorið 1987 undir handleiðslu Halldórs Haraldssonar. Þórarinn stundaði framhaldsnám í Hannover í Þýskalandi hjá prof. Eriku Haase. Hann hefur auk þess sótt einkatíma og námskeið hjá Einari Steen-Nøkleberg, Colette Zérah, Edith Picht-Axenfeld og Vlado Perlemuter. Að námi loknu bjó og starfaði Þórarinn um nokkurra ára skeið í Þýskalandi og Danmörku. Hann hefur komið fram á fjölda tónleika víða um Evrópu sem einleikari og meðleikari með söngvurum og hljóðfæraleikrurum.
Þórarinn hefur auk þess skipulagt fjölda tónleika m.a. í Þýskalandi, Danmörku, Grænlandi og Færeyjum. Hann er nú listrænn stjórnandi tónlistardagskrár Tónlistarhússins Laugarborgar í Eyjafjarðarsveit.
Þórarinn hefur gert upptökur fyrir sjónvarp og útvarp m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Árið 2007 hlaut Þórarinn starfslaun listamanna.