ÞRIÐJUDAGUR 10.Febrúar 2009
Tuesday February 10th
20.00 @ Langholtskirkja
ÞRIÐJUDAGUR 10.Febrúar 2009
Tuesday February 10th
20.00 @ Langholtskirkja
JÓN LEIFS CAMERATA
Stjórnandi / conductor:
Hákon Leifsson
Einleikari / Soloist: Hjörleifur Valsson, fiðla
Einsöngvari / Vocalist: Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran
EFNISSKRÁ / PROGRAM:
Ríkarður Örn Pálsson: Dansar og stemmur (frumflutningur)
Egill Ólafsson: Hr. Z (fig.40) (frumflutningur)
Gunnar Þórðarson: La prière (frumflutningur á Íslandi)
Um efnisskrána / About the program:
Fiðlukonsert Ríkarðs Arnar er saminn fyrir Hjörleif og ber nafnið Dansar og stemmur. Að sögn Ríkarðs “fellur þessi tónlist ágætlega að þeirri þörf fyrir millimúsik sem Ríkarður telur æ nauðsynlegri tengingu milli akademískrar framúrstefnu og markaðspopps – aðalpólanna í íslenzku tónlistarlífi” .
Strengjatríó Egils heitir Herra Z og er í þremur köflum fyrir fiðlu , víólu og selló. Það er tileinkað Paul Klee og mynd sem hann málaði sem ber nafnið Herra Z en þar er umfjöllunar efnið maður með Zetu skrifaða á enni hans. Paul Klee, sem var fiðluleikari vellti fyrir sér hvort tónsmíðar Schönbergs hafi markað endalok fagurlistanna. Agli var þessi hugsun hugleikin við smíðar á verkinu.
Tónleikunum lýkur síðan á verkinu La prière eftir Gunnar Þórðarson. Titill verksins er Bæn á íslensku ogt er samið við frumsamið ljóð eftir Albert Stricler. Tilurð verksins var vegna samvinnuverkefnisins Mosaík trílógía en það var þverfaglegt samstarfsverkefni íslenskra og franskra listamanna sem fór fram í Alsace í Frakklandi. Listamennirnir fjórir sem boðið var til verkefnisins komu annars vegar frá Frakklandi, Gerard Brand, höggmyndasmiður, og Albert Strickler, ljóðskáld, og hins vegar frá Íslandi, Gunnar Þórðarson, tónskáld, og Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópransöngkona. Þema verkefnisins er ‘Bænin’ í víðum skilningi. Myndlistalistamaðurinn, Gerard Brand, þekktur sem mósaík-listamaður í Evrópu m.a. fyrir að hafa þróað nýja tegund mósaík-listar, ‘þrívíddar mósaíkhöggmyndir’ Hann gerði átta skúlptúra af þessu tilefni og valdi hann þemað, ‘Bænina’ til að vinna út frá. Ljóðskáldið Albert Strickler vann í nánu samstarfi við hina listamennina átta ljóð innblásin af þemanu og jafn mörgum skúlptúrum Gerard Brands. Ljóð Alberts Strickler eru ekki eingöngu nátengd myndlistinni sem hann leggur út af heldur eru þau einnig inntakið fyrir tónlist Gunnars Þórðarsonar. Verkið var frumflutt á sýningu mósaíkmyndanna í fornri kirju í Rosheim í Frakklandi síðastliðið sumar en það var Sigrún sem söng einsönginn.
Um flytjendur / About the performers:
Dr. Hákon Leifsson lagði ungur stund á hornleik við Konunglega konservatoríið í Kaupmannahöfn og lauk kennaraprófi á hljóðfærið 1986 frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Þá stundaði hann tónsmíðanám hjá Hallgrími Helgasyni, Atla Heimi Sveinssyni og við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Hákon lauk Masters of Music-prófi í hljómsveitarstjórn frá New England Conservatory í Boston árið 1990 og hefur starfað talsvert sem hljómsveitarstjóri, m.a. með Íslensku hljómsveitinni, CAPUT, Jón Leifs Camerata, Blásarakvintett Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hefur komið fram á áskriftartónleikum, út á geisladisk, tekið upp fyrir útvarp og fram á skólatónleikum með S.Í., nú síðast í febrúar síðastliðnum á skólatónleikum einu sinni sem oftar. Hákon stjórnaði Háskólakórnum í rúman áratug (1993-2007 með hléum) og stofnaði upp úr honum kammerkórinn Vox Academica árið 1996. Hákon lauk doktorsprófi í kórstjórn frá University of Washington, Seattle í ágúst 2004 undir handleiðslu prof.Abraham Kaplan og prof. Peter Erös. Hákon er einnig menntaður leikari og hefur unnið talsvert í leikhúsi, bæði sem leikari og tónskáld. Hákon kennir kórstjórn við Tónskóla þjóðkirkjunnar og mun kenna nemendum Listaháskólans frá og með haustinu 2008 er starfsemi Tónskóla Þjóðkirkjunnar færist að hluta til þangað. Á undanförnum árum hefur Hákon flutt mikinn fjölda megin verka kórbókmenntanna fyrir kór og hljómsveit, ber þar helst að geta Brynjólfsmessu e. Gunnar Þórðarson sem var samin að hans frumkvæði, Requiem e. G. Faure, Messías e. G.F. Handel, Requiem e. W.A.Mozart, Deutsches Requiem eftir J. Brahms og að síðustu Requiem e. G. Verdi 5.apríl sl. í Hallgrímskirkju. Hann starfaði sem organisti í Hafnarkirkju, Hornarfirði 1990- 1991. Þorlákskirkju 1991-1992 og síðan sem organisti Seltjarnarnneskirkju 1992-1994. Hákon var organisti við Keflavíkurkirkju frá 2001 -2008, en er nú organisti og tónlistarstjóri við Grafarvogskirkju.
Hjörleifur Valsson (1970) lauk einleikaraprófi frá tónlistarháskólanum í Ósló árið 1993, þar sem aðalkennari hans var Eivind Aadland, en hlaut þá styrk frá tékkneska ríkinu til náms við Prag konservatoríið. Þar nam hann fiðluleik og kammertónlist í þrjú ár, auk þess að leika með ýmsum kammerhópum og hljómsveitum þar í borg. Hjörleifur lauk Dipl. Mus. gráðu frá Folkwang Hochschule í Essen sumarið 2000. Á námsárum sínum í mið-evrópu sótti hann námskeið hjá Grigorij Zhislin, Truls Mörk, Pierre Amoyal, Sergej Stadler, Pavel Gililov o.fl. Hann hefur komið fram á fjölda tónleika víða um Evrópu, starfað með tónlistarmönnum á borð við Mstislav Rostropovitsj, Shlomo Mintz, Gilles Apap o.fl., samið, útsett og leikið tónlist fyrir leikhús og margoft tekið þátt í upptökum fyrir útvarp, sjónvarp, kvikmyndir og hljómplötuútgáfur. Hjörleifur er mjög virkur í íslensku tónlistarlífi og kemur víða við sem fiðluleikari auk þess að kenna fiðluleik við tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Hann leikur á fiðlu smíðaða af Antonio Stradivari frá árinu 1732.
Sigrún Hjálmtýsdóttir hóf feril sinn á sviði dægurtónlistar. Síðar hóf hún sígilt söngnám við Guildhall School of Music and Drama í London og stundaði framhaldsnám á Ítalíu. Hún hefur tekið þátt í margvíslegum uppfærslum og sýningum jafnt á sviði sem og í kvikmyndum, sem ber fjölbreyttum hæfileikum hennar vitni. Frumraun sína á óperusviði þreytti hún í hlutverki dúkkunar, Olympiu, í Ævintýrum Hoffmanns í Þjóðleikhúsinu, en sú sýning var samstarfsverkefni Íslensku óperunnar og Þjóðleikhússins. Önnur verkefni hennar hjá Íslensku óperunni eru hlutverk Súsönnu í Brúðkaupi Fígarós, Gildu í Rigoletto, Papagenu og Næturdrottningarinnar í Töfraflautunni, Lúsíu í Lucia di Lammermoor, Víolettu í La Traviata, Adínu í Ástardrykknum og Rósalindu í Leðurblökunni. Hún söng þrjú hlutverk í uppfærslu á Niflungahring Wagners sem var samvinnuverkefni Íslensku óperunnar, Þjóðleikhússins og Listahátíðar. Hún hefur marg oft komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem og erlendum hljómsveitum. Hún hefur hljóðritað fjóra geisladiska við undirleik Sinfóníunnar en alls hefur hún sungið inn á 50 hljómplötur. Árið 2001 söng hún ásamt José Carreras á eftirminnilegum tónleikum í Laugardagshöll og 2005 hlotnaðist hennni sá heiður að stíga á stokk með Palcido Domingo á tónleikum hans í Egilshöll. Verkefnin framundan eru ærin, m.a mun hún á næsta ári syngja í Prag, Moskvu, Strassbourg, Róm og St. Pétursborg.
Um tónskáldin og verkin / About the composers and their pieces:
Ríkarður Örn Pálsson (f. 1946) ólst upp í Kaupmannahöfn, en fluttist til Íslands 1960 og varð stúdent úr máladeild MR 1967. Hann hefur komið allvíða við í tónlist, þó að formlegt tónlistarnám hæfist fyrst á hálfþrítugsaldri í Tónlistarskólanum í Reykjavík, að viðbættri námsdvöl í Indiana University 1982-83.
Á síðustu áratugum 20. aldar fekkst hann m.a. við dagskrárgerð fyrir RÚV, útsetningar og sjónvarps- og leikhústónlist, en hefur frá um 1994 haft tónlistargagnrýni að aðalstarfi fyrir Morgunblaðið. Á Norðurlöndum er hann kunnastur fyrir þáttöku í klassísku sjónvarpskeppninni „Kontrapunkti" 1990-98.
Fiðlukonsertinn Dansar og stemmur varð til þegar fiðluleikarann Hjörleif Valsson vantaði útsetningar á disk s.l. júní. Þeirri bón sneri Ríkarður óðara upp í frumsaminn fiðlukonsert á þjóðlegum nótum, heima sem heiman, enda hafa þjóðlög og þjóðlagastíll löngum verið meðal áhugamála hans á breiðu tónsviði. Var því vel tekið.
Frá félagslegu sjónarhorni féll sú nálgun jafnframt ágætlega að þeirri þörf fyrir „millimúsík" er Ríkarður telur æ nauðsynlegri tenging milli akademískrar framúrstefnu og markaðspopps – aðalpólanna í íslenzku tónlistarlífi. Á hérlendum dvergmarkaði hefur sú tenging hins vegar átt örðugt uppdráttar, og fjarvera hennar aukið andstæða öfga tónlistarlandslagsins langt umfram það sem eðlilegt væri.
Konsertinn er fjórþættur og hefst á stuttu Pastorale, búlgarskri hjarðsælu í tatarasamleik einleiksfiðlu og balkneskrar smalapípu i gervi klarínettsins. Við tekur Klezmeriana, glettin brúðkaupsmúsík gyðinga (stefin þrjú ugglaust að mestu stolin), rofin innskotum frá ímyndaðri búlgarskri fótmennt að svipuðu tilefni.
Þá kemur að Klakanum í Stemmum, og í tremólerandi Austfjarðaþoku strengjanna undir flaututóna-lagboða einleiksfiðlunnnar rísa upp kvæðalögin Morgunsólar geislaglóð og Fann ég fyrrum þyt á þökum (úr Silfurplötum Iðunnar) – ásamt frumsömdu þjóðlagi höfundar við róðrarvísuna ófeðruðu Frá Eyrarbakka út í Vog / er það mældur vegur / átján þúsund áratog / áttatíu og fjegur (úr nýlegu kórverki, Áralögum).
Þokuhjúpaður niðurlaghlutinn boðar undirmeðvitundinni concerto grosso stef IV. þáttar, Gígju, undir dansvænum 9/8 barokkhryn - er fær þó ekki, frekar en Klezmerþátturinn, að vera í friði fyrir trylltum búlgörskum innskotum fyrr en hnígur að kunnuglegu niðurlagi í anda hárkollualdar.
Egill Ólafsson stundaði ungur hljóðfæranám og spilaði í lúðrasveit undir stjórn Karls Runólfssonar. Egill stundaði nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík á árunum 1970 -76. Söng með Kór Mennta- skólans í Hamrahlíð. Auk þess hefur Egill tekið Master-Class hjá Jo Estill, Poul Farrington, Oren Brown, Thorsten Föllinger og Per Raben, Jukka Linkola, Pierre Dörge í bæði söng og tónsmíðum.
Egill er þekktur fyrir störf sín í leikhúsum og kvikmyndum og eins á sviði Dægur, -jass- og tangó-tónlistar, eins hefur hann sungið sígilda tónlist opinberlega. Í leikhúsunum hefur Egill samið m.a. tónlist fyrir 25 leikhúsuppfærslur og þar af skrifað tónlist fyrir þrjá söngleiki, Gretti, Evu Lunu og Come Dance With Me, sem sett var upp í Cernucini-leikhúsinu í New York.
Egill hefur og sungið aðalhlutverk í m.a. söngleikjunum; Gæjum og píum, Vesalingunum, Evitu, Carmen Negra, Kysstu mig Kata og Túskildingsóperunni.
Egill starfaði með Spilverki þjóðanna á árunum 75-78, Þursaflokknum 78-82, Tríói Björns Thoroddsen 92- 2006 , Tamlasveitinni 93-96, Le Grand Tango 2003 – 2004, Stuðmönnum frá 75-2008 og Icelandic Sound Company 2006 - 2008.
Hr. Z (fig 40) / Þrjár hljómkviður fyrir fiðlu, víólu og selló.
Nafnið er sótt til eins af síðustu myndverkum Paul Klee* (svissneskur málari 1879-1940). Paul Klee stundaði fiðluleik framan af, en valdi myndlistina, þar sem hann áleit að kenningar Hegels (f. 1770-1831); um endalok fagur-lista, samkvæmt þríhyrndri framvindu alls, - væri endanlega opinberuð með tónlist Schönbergs (1874- 1951). Þó má segja að verk Klee og Schönbergs og Dadaistanna í ljóðlist sé um markt sammarka - þó að Paul Klee hafi aldrei vilja gangast við því að vera kallaður modernisti.
Áhrif klassískrar fagurfræði og fagurfræði/affegrun, sem modernisminn skóp (að upphefja ljótleikann í fegurðinni og fegurðina í ljótleikanum) í upphafi síðustu aldar, er engu að síður allt um kring, hvað sem líður hinum svokallaða post-modernisma okkar tíma. Kenningar um fagurfræði breytast “as we speak”, mjög fáir innan listheimspekinnar hafa gefið því gaum. Flestir hafa gengið út frá að listin sé gefin stærð, af því leiðir að kenningarsmíðin um fyrirbærið list er takmarkandi. Listin eins og fagurfræðin, er nákomin heimspeki, siðfræði og tíðaranda og því síbreytileg.
Mr. Z (fig 40) er mynd af höfði, sem hefur bókstafinn Z sem andlit. Andlitið er órætt, eins og pókerspilari sem ekkert vill gefa upp, fígúran er nær því að vera andlitslaus – í hvað samfélagi verður slík vera til, hver er hann þessi herra Z ?
*Klee var leitandi í listsköpun sinni, að eigin sögn, og var drifinn áfram af dulúð sköpunar (Genesis), frumupptökum alls sem er, þar sem varðveittur er leyndur lykill allra hluta.
Gunnar Þórðarson er fæddur í Hólmavík. Hann er einn af stofnendum hljómsveitanna Hljóma,
sem störfuðu frá árinu 1963-1969 og hljómsveitarinnar Trúbrot sem var stofnuð árið 1969-1973.
Árið 1998 var hann einn af stofnendum "Gitar Islancio". Árið 2000 var frumflutt "Heilög messa" fyrir hljómsveit kór og einsöngvara eftir Gunnar. Árið 2006 var frumflutt verkið "Brynjólfsmessa" fyrir kór, barnakór,hljómsveit og einsöngvara. Gunnar hefur samið tónlist við kvikmyndir s.s."Agnes", "Reykjavík Reykjavík", "Óðal feðranna".Samið tónlist við tvo söngleiki"Á köldum klaka" og "Örfá sæti laus".Gunnar hefur útsett og stjórnað upptökum á yfir 100 hljómplötum.
Gunnar hefur samið yfir 600 lög á ferli sínum.
Tónverkið La prière er samið árið 2008 á vormánuðum við texta franska ljóðskáldsins Alberts Strickler.
(c) Icelandic Society of Composers 2008 - contact: kjol@lhi.is / hallivs@internet.is