FÖSTUDAGUR 13.Febrúar 2009
Friday February 13th
20.00 @ HAFNARBORG
FÖSTUDAGUR 13.Febrúar 2009
Friday February 13th
20.00 @ HAFNARBORG
ÁRNI EGILSSON: Portrett
Flytjendur:
Sigurður Flosason: Saxófónar, flautur og klarinett
Kjartan Valdemarsson: Píanó
Guðmundur Pétursson: Gítar
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson: Kontrabassi
Einar Scheving: Trommur
Sigrún Eðvaldsdóttir: Fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir: Víóla
Bryndís Halla Gylfadóttir: Selló
EFNISSKRÁ / PROGRAM:
Changing Times fyrir altó og tenor saxófón, píanó og slagverk. Frumflutningur.
Get down fyrir flautu og altó flautu, fiðlu, violu og selló. Frumflutningur.
Mulitplicity fyrir spinnandi tréblásara (altó sax, flauta og klarinett) og píanó, gítar, kontrabassa og trommur. Frumfl.
Just a touch of armadillo fyrir flautu , fiðlu, violu og selló. Frumflutningur.
Farewell fyrir saxófón, píanó og slagverk.
Um tónskáldið / About the composer:
Árni Egilsson er fæddur í Reykjavík 22. mai 1939. Hann nam við Tónlistarskólann í Reykjavík og hélt síðan til náms í Bretlandi og Hamburg í Þýskalandi (Staatliche Hochschule für Musik). Sem Kontrabassaleikari lék hann með sinfóníuhljómsveitum á Íslandi, Írlandi og Þýskalandi, en þar réði hann hinn kunni stjórnandi Sir John Barbirolli til Bandaríkjanna og spila með sinfóníuhljómsveitinni í Houston, Texas. Eftir Barbirolli lét af störfum tók André Previn við og léku hann og Árni einnig jazz víða saman og spiluðu m.a. á listahátíð í Reykjavík árið 1974.
Gegnum árin hefur Árni gert mikið af að spila einleiksverk fyrir kontrabassa. Sem einleikari hefur hann komið fram á meginlandi Evrópu og víðsvegar í Bandaríkjunum og fengið frábæra dóma gagnrýnenda. Árið 1975 frumflutti hann fyrsta íslenska konsertinn fyrir kontrabassa og sinfóníuhljómsveit, "Niður" eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Stjórnandi var Vladimir Ashkenazy og var konsertinn gefinn út á geisladisk.
Árni hefur búið í Los Angeles, California síðan 1969 og er einn eftirsóttasti "stúdíó-bassaleikari" þeirrar borgar. Sem slíkur hefur hann unnið við hljómlist við þúsunda kvikmynda, sjónvarpsþátta og hljómplatna og spilar jöfnum höndum klassíska músík, jazz og rokk.
Um árabil var Árni prófessor í kontrabassaleik við háskólann California State University Northridge og eru margir nemendur hans meðlimir í þekktum sinfóníuhljómsveitum svo sem Los Angeles Philharmonic, San Francisco Symphony, San Diego Symphony og eins Evrópskum hljómsveitum.
Á seinni árum hefur Árni snúið sér að tónsmíðum og hefur samið mikið af kammermúsík, einleiksstykki fyrir kontrabassa, hljómsveitarverk, hljómlist fyrir leikhús og ballett og kórverk.
Árni Egilsson has earned an international reputation as a Double Bass soloist, having performed in his native Iceland and throughout Europe and the United States. He was brought to the United States by the late Sir John Barbirolli to play with the Houston Symphony Orchestra. While there, he established an enduring relationship with André Previn. A versatile instrumentalist, equally comfortable in jazz and classical venues he has recorded a classical solo album with Vladimir Ashkenazy and a jazz album with Ray Brown.
Egilsson is highly regarded as a leading session player in the orchestras of the Los Angeles recording studios serving as Principal Bassplayer for most of Hollywood’s top composers. He has been a Professor of Double Bass at California State University, Northridge. In recent years he has become well known as a composer of works for Double Bass, Chamber Ensemble and Symphony Orchestra as well as Solo Voice and Choral works.
Um verkin / About the pieces:
Changing Times
Íslendingar nær og fjær hafa verið snortnir af hinum hörmulegu atburðum undanfarinna mánaða. Flestum er það ljóst að atburðir þessir gætu haft veruleg áhrif á líf eða dauða þjóðarsálar okkar og að þörf sé á gagngerðum og jákvæðum breytingum.
Við Íslendingar erum ekki alls ókunnug erfiðleikum þótt úr þeim hafi verið komist með mismunandi háttum.
Til dæmis í sögu Egils Rauða segir frá tímabili þá landnámsmenn á Grænlandi áttu við hungursneið að etja. Þeir sendu þá eftir völunni Þorbjörgu til að búa þá undir framtíðina og munu gerðir hennar hafa haft góð áhrif.
Vonandi tekst ráðamönnum nútímans eins vel að leysa úr þjóðarvanda okkar í dag því völur virðast vera af frekar skornum skammti.
Kannski er árið 2009 okkar örlagastund, en verk þetta “Changing Times” er samið í þeirri trú að framtíðin verði landi og þjóð hamingjurík.
Árni Egilsson , Oxnard 10. Janúar, 2009
Get Down
Æi, það er stundum gaman að lifa. Ég vona að verkið beri það með sér.
-ÁE
Multiplicity
Sem ungur tónlistarnemandi átti ég því láni að fagna að allir kennarar mínir ( Jón Þórarinsson, tónfræði, Sigurbjörn Ingþórsson, Dr Erwin Koeppen, Jón Sigurðsson og Prof. Heinz Nellessen kontrabassa) brýndu fyrir mér kosti þess að læra að spila í sem flestum og ólíkustu stílum. Þeir töldu að hinn fullkomni hljóðfæraleikari ætti að geta spilað allt á sannfærandi hátt.
Þessi lærdómur kom sér vel á ferli mínum og gerði oft kleift að afla salti í grautinn.
Það er mér sérstök ánægja að Ísland á alveg einstakan blásara, Sigurð Flosason. Hann og og það góða lið sem hann hefur með sér hafa alla þá eiginleika til að bera sem ég ber virðingu fyrir.
“Multiplicity” er ekki bara samið fyrir 4 mismunandi einleikshljóðfæri, heldur er hvert hljóðfæri spilað í mismunandi stíl bæði af einleikurum og undirleikurum.
Ég kann þeim miklar þakkir fyrir.
-ÁE
Just a Touch of Armadillo
“.......Armadillo” er frekar stutt og frískt verk sem gefur tækifæri til að stappa létt. smella fingrum og setja inn einleiks kafla leikna af fingrum fram.
-ÁE